Töluverður munur á launahlutfalli Stjörnunnar og Ilves

Guðmundur Baldvin Nökkvason skoraði eina markið í fyrri leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Guðmundur Baldvin Nökkvason skoraði eina markið í fyrri leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Í kvöld fer fram seinni leikurinn í viðureign Stjörnunnar og finnska liðsins Ilves í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Fyrri leikur liðanna fór fram 23. júlí í Garðabænum þar sem Stjarnan vann 1-0.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 26. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.
Útgjöld liðanna voru aðeins nær hvort öðru samanborið við tekjurnar. Útgjöld Ilves voru ríflega 669 milljónir króna á meðan útgjöld Stjörnunnar voru 541 milljón króna. Stærsti hluti útgjalda liðanna tveggja eru vitaskuld launakostnaður, sem var meiri hjá Stjörnunni. Launakostnaður Stjörnunnar nam 390 milljónum króna á síðasta ári samanborið við 323 milljónir króna hjá Ilves. Ef litið er á launahlutfall liðanna þá var það 84% hjá Stjörnunni og 45% hjá Ilves.
Það er nokkuð mikill munur á afkomu liðanna. Á meðan Ilves skilaði hagnaði upp á tæplega 50 milljónir króna var Stjarnan rekin með tapi upp á 80 milljónir króna, sem var versta afkomu íslensks fótboltaliðs árið 2025.

