Fotbolti.net
30.07.26 - 10:16
Kári Snorrason

Lacroix til Chelsea (Staðfest)

Skrifar undir samning til ársins 2032.

Skrifar undir samning til ársins 2032.

Canon

Mynd: Chelsea

Franski varnarmaðurinn Maxence Lacroix er genginn í raðir Chelsea frá Crystal Palace.

Kaupverðið á þeim franska er 52 milljónir punda og skrifar hann undir sex ára samning við félagið.
Þessi 26 ára hafsent spilaði þrjá leiki með Frakklandi á nýloknu heimsmeistaramóti og hefur verið lykilmaður í liði Palace undanfarin tvö ár.

Lacroix er þriðji leikmaðurinn sem Xabi Alonso sækir sem stjóri Chelsea á eftir Morgan Rogers og Marco Palestra.

Liðið er sömuleiðis komið langt með að landa reynsluboltunum tveimur Jordan Henderson og Danny Welbeck.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.