Fotbolti.net
30.07.26 - 08:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sjáðu hræðilegt klúður Víkinga fimm á móti einum

Víkingar naga sig í handabökin.

Víkingar naga sig í handabökin.

Canon

Mynd: Skjáskot

Víkingur er úr leik í Meistaradeildinni eftir tap gegn ísraelska liðinu Hapoel Be'er Sheva í gær. Víkingur vann fyrri leikinn 2-1 hér heima en tapaði í Ungverjalandi 2-0 í gær.
Lestu um leikinn: Hapoel Be'er Sheva 2 - 0 Víkingur R.
Víkingar voru betri í fyrri hálfleik og fengu gullið tækifæri til að komast yfir um miðjan fyrri hálfleikinn.

Gylfi Þór Sigurðsson vann boltann á miðjunni og átti frábæran sprett að vítateignum. Hann átti síðan mjög slaka sendingu en boltinn barst til Sveins Margeirs Haukssonar sem sendi í varnarmann og boltinn fór framhjá.

Víkingar voru fimm í sókn á móti einum varnarmanni en Gylfi fór mjög illa með mjög gott tækifæri. Atvik sem er hægt að skrá sem algjöran vendipunkt í einvíginu og eitthvað sem Víkingar naga sig í handabökin yfir. Sjáðu færið hér fyrir neðan.

Víkingur mætir svissnesku meisturunum í Thun í næst síðustu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. Fyrri leikurinn fer fram ytra á fimmtudaginn 6. ágúst og seinni leikurinn í Víkinni þann 13. ágúst.

Klúðrið ótrúlega:


Allt það helsta úr leiknum:
Sjáðu hræðilegt klúður Víkinga fimm á móti einum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.