Fotbolti.net
29.07.26 - 22:48
Stefán Marteinn Ólafsson

Venni: Alltaf einhverjar klisjur en mörk breyta leikjum

Auglýsing
Sigurvin Ólafsson þjálfari Þróttar

Sigurvin Ólafsson þjálfari Þróttar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Þróttur vann öflugan sigur á Aftureldingu í kvöld og skellti sér í toppsæti Lengjudeildarinnar og verður þar yfir verslunarmannahelgina. 

Lestu um leikinn: Þróttur R. 4 - 1 Afturelding

„Þetta var stórslagur og mikið undir" sagði Sigurvin Ólafsson þjálfari Þróttar eftir sigurinn í kvöld.

„Mér fannst Afturelding byrja betur, fyrstu fimmtán mínúturnar. Ekkert eitthvað mikið betur en við vorum í smá basli með að klukka þá" 

„Gerðum smá breytingar bara 'in game', breytum aðeins um taktík og settum svo bara í gang. Náum að komast yfir og hamra járnið á meðan við vorum í smá stuði" 

Þróttur komst yfir með marki eftir vítaspyrnu og eftir það tóku Þróttarar yfir leikinn.

„Þetta eru alltaf einhverjar klisjur en mörk breyta leikjum en það er þægilegra að komast í forystu og þurfa ekki að elta geta þá aðeins beðið eftir þeim" 

„Afturelding er frábært lið og ofsalega vel spilandi. Það er erfitt að taka boltann af þeim þannig það er ágætt að vera komnir yfir og þá þurftu þeir náttúrlega aðeins að stíga fram völlinn og taka kannski einhverja smá sénsa sem að við náðum að nýta mjög vel þegar við komumst í skyndisóknir" sagði Sigurvin Ólafsson.

Nánar er rætt við Sigurvin Ólafsson í spilaranum hér fyrir ofan.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Þróttur R.16+2033
2Fylkir16+1233
3Afturelding15+1931
4HK16+928
5Njarðvík16+326
6Grótta14+122
7Vestri15-521
8Leiknir R.15-419
9ÍR16-916
10Grindavík15-514
11Völsungur16-1711
12Ægir16-248
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.