Fotbolti.net
30.07.26 - 11:30
Elvar Geir Magnússon

Castro til Roma (Staðfest) - Dovbyk til Bologna

Castro til Roma (Staðfest) - Dovbyk til Bologna
Canon

Mynd: EPA

Roma hefur keypt Santiago Castro frá Bologna og er hann fyrstu kaup félagsins í glugganum. Framherjinn kostar um 35 milljónir evra auk bónusgreiðslna.

Búist er við því að úkraínski sóknarmaðurinn Artem Dovbyk fari öfuga leið, gangi í raðir Bologna á lánssamningi en með klásúlu um möguleg kaup að lánsdvölinni lokinni.
Castro er fæddur 2004 og skrifaði undir fimm ára samning í Rómarborg þar sem hann tekur við treyju númer níu.

Castro skoraði átta mörk og lagði upp fimm í 36 leikjum á sínu fyrsta heila tímabili í Serie A (2024-25) og bætti síðan við sjö mörkum og þremur stoðsendingum í 35 deildarleikjum tímabilið 2025-26.

Gert er ráð fyrir að hann keppi við Donyell Malen um stöðu fremsta sóknarmanns undir stjórn Gian Piero Gasperini.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.