Stuðningsmenn Newcastle tjá sig um tíðindin - Frá breskum séntilmanni yfir í þýskan spaða

Sagði óvænt upp störfum í morgun.

Mynd: EPA

Matthias Jaissle er sagður vera að taka við liðinu.

Mynd: EPA

Liðið endaði í 12. sæti á síðustu leiktíð.

Mynd: EPA

Ein gömul og góð af Jóni Júlíusi Karlssyni.

Mynd: Úr einkasafni

Benedikt Bóas í góðum gír.

Mynd: Úr einkasafni

„Að ná að selja Gordon á 80 milljónir er auðvitað kraftaverk.“

Mynd: Barcelona

Jón Þór Kristinsson fylgdi liðinu vel á eftir á síðasta tímabili og mætti alls á 18 leiki.

Mynd: Úr einkasafni

Guimaraes hefur verið orðaður frá félaginu.

Mynd: EPA

Sagði óvænt upp störfum í morgun.

Mynd: EPA
Hann var fimm ár með stjórnartaumana hjá Newcastle og stýrði liðinu til sigurs í deildabikarnum á síðasta ári ásamt því að koma liðinu tvívegis í Meistaradeild Evrópu.
Margir lykilmenn liðsins eru farnir, má þar nefna Sandro Tonali, Anthony Gordon og Kieran Trippier. Þá er Bruno Guimaraes jafnframt orðaður í burtu frá félaginu.
Fótbolti.net ræddi við þrjá stuðningsmenn Newcastle og lagði fyrir þá þrjár eftirfarandi spurningar.
A) Eddie Howe farinn, hvernig horfa þau tíðindi við þér?
B) Matthias Jaissle sagður vera að taka við, hvernig líst þér á hann?
C) Stórir póstar farnir og þjálfarabreytingar hjá liðinu, hverjar eru væntingarnar fyrir komandi tímabil?

Howe hættir óvænt hjá Newcastle
Jón Júlíus Karlsson
A) Ég verð að viðurkenna að ég er mjög svekktur yfir þessu. Eddie Howe gerði frábæra hluti fyrir Newcastle, kom með stöðugleika sem félagið hafði vantað lengi og skilaði frábærum árangri. Þetta kemur mér mjög á óvart og persónulega fannst mér ekki endilega kominn tími á breytingar.
B) Ég þekki ekki mikið til Jaissle, en það sem ég hef séð bendir til þess að hann vilji spila sókndjarfan og skemmtilegan fótbolta. Það er leikstíll sem á vel við Newcastle og stuðningsmenn vilja sjá. En það er stórt skref úr boltanum í Sádí yfir í ensku úrvalsdeildina.
C) Ég er með hæfilegar væntingar. Sem stuðningsmaður Newcastle hef ég lært að taka engu sem sjálfsögðum hlut. Vonandi verðum við áfram í baráttunni á efri hluta töflunnar, en ef tímabilið verður erfitt þá vona ég að við endum að minnsta kosti ekki neðar en um miðja deild.
Benedikt Bóas Hinriksson
A) Þetta var óvænt. Viðurkenni það. En ég hef eiginlega alltaf sagt að Eddie Howe yrði fórnarlamb síns eigin árangurs. Og kannski kom velgengnin of snemma. Að vinna Carabao Cup og komast langt í Meistaradeildinni með ekki breiðari hóp var auðvitað kraftaverk enda Eddie vinur minn kraftaverkakall.
Persónulega fannst mér ekki kominn tími á breytingar. Það var svolítið kúl að hafa þá fóstbræður þarna á hliðarlínunni, hann og Tindall. Ég hefði treyst honum til að leiða liðið næstu 10 árin. En stjórn og hann hafa ekki verið að ganga í takt þannig að það þarf að taka erfiðar ákvarðanir.
B) Bara fínt. Ungur, sprækur og virðist alveg gufuruglaður miðað við það sem ég hef séð. Eddie vinur minn var auðvitað breskur séntilmaður en núna er einhver voðalegur spaði mættur og það verður bara stuð að sjá hann á hliðarlínunni.
Vonandi verður hann ekki jafn óþolandi og Arteta á hliðarlínunni. Erlendir þjálfarar hjá Newcastle hafa ekkert alltaf verið frábærir eða skilað einhverju stórkostlegu þannig ég verð að viðurkenna að ég hefði viljað breskan stjóra. En hvern. Ég hef bara ekki hugmynd um það.
C) Væntingum okkar Newcastle-fólks er nú yfirleitt stillt í hóf. Aðalatriðið er að spila skemmtilegan fótbolta og berja á þessum stórliðum sem eru að eyðileggja enska fótboltann.
Að ná að selja Gordon á 80 milljónir er auðvitað kraftaverk og það er ekkert hægt að segja nei við 100 milljónum í Tonali. Ég elska Bruno og vil alls ekki að hann fari. Ef það gerist þá má stilla væntingum í mikið hóf. En ég mun mæta samt á Ölver og styðja mitt lið. Það breytist ekkert.
Jón Þór Kristinsson
A) Það sem kom mér helst á óvart var tímasetningin. Eddie byrjaði undirbúningstímabilið og því hefði maður frekar búist við breytingum í lok síðasta tímabils ef þær yrðu. Síðasta tímabil var mikil vonbrigði og stemningin undir restina var orðin mjög súr.
Mér fannst vera kominn tími á breytingar en að því sögðu gerði Eddie ótrúlega hluti eins og að vinna deildarbikarinn og koma liðinu tvisvar í Meistaradeildina. Ég hefði stutt þá ákvörðun að hann myndi halda áfram með liðið en hann virðist hafa stigið sjálfur frá borði.
B) Matthias Jaissle er mjög spennandi kostur. Hann virðist vera þjálfari sem vinnur vel með unga leikmenn og hefur skýra hugmyndafræði. Hins vegar er þetta starf allt annað en það sem hann hefur áður tekist á við.
Við höfum séð marga unga þjálfara koma inn í enska boltann og lenda á vegg. Það verður mikil pressa á honum og hann þarf að vinna stuðningsmennina á sitt band frá fyrsta degi. Ég hef fulla trú á honum!
C) Það er auðvitað mikið högg að missa leikmenn eins og Tonali, Gordon, Trippier og mögulega Bruno næstur. Við sjáum þetta oft í Englandi að bestu leikmennirnir séu teknir úr minni liðunum en nú þurfa aðrir að stíga upp og grípa tækifærið. Það virðist vera einhver ný stefna í innkaupum og liðið búið að sækja nokkra unga og spennandi leikmenn og ég á von á að sjá allavega 2 í viðbót. Tímabilið leggst vel í mig.
Það virðist vera einhver ný stefna í innkaupum og liðið er búið að sækja nokkra unga og spennandi leikmenn og ég á von á að sjá allavega 2 í viðbót. Tímabilið leggst vel í mig. Við erum ekki í Evrópukeppni í ár sem ætti að vinna með okkur í deildinni og það er krafa að koma liðinu aftur í efstu 8 sætin og ná góðum árangri í bikarkeppnum. Fyrsti leikur 23. ágúst, ég verð þar sama hvað. Up The Toon!

Matthias Jaissle er sagður vera að taka við liðinu.

Mynd: EPA

Liðið endaði í 12. sæti á síðustu leiktíð.

Mynd: EPA

Ein gömul og góð af Jóni Júlíusi Karlssyni.

Mynd: Úr einkasafni

Benedikt Bóas í góðum gír.

Mynd: Úr einkasafni

„Að ná að selja Gordon á 80 milljónir er auðvitað kraftaverk.“

Mynd: Barcelona

Jón Þór Kristinsson fylgdi liðinu vel á eftir á síðasta tímabili og mætti alls á 18 leiki.

Mynd: Úr einkasafni

Guimaraes hefur verið orðaður frá félaginu.

Mynd: EPA
