Fotbolti.net
30.07.26 - 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Steinþór Freyr klárar tímabilið á Dalvík (Staðfest)

Steinþór Freyr klárar tímabilið á Dalvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Reynsluboltinn Steinþór Freyr Þorsteinsson fékk félagaskipti frá Völsungi í Dalvík/Reyni skömmu fyrir gluggalok í gær.

Hann kom inn á undir lok leiks Fylkis og Völsungs í gær og í kjölfarið fóru svo félagaskiptin í gegn.

Steinþór varð 41 árs í gær og hefur á sínum ferli spilað með Breiðabliki, Stjörnunni, Örgryte, Sandnes Ulf, Viking Stavanger, KA og Völsungi. Hann á að baki átta A-landsleiki og hefur samkvæmt KSÍ skorað 63 mörk í 387 meistaraflokksleikjum á Íslandi.
Dalvík/Reynir hefur tapað fjórum leikjum í röð. Liðið er sem stendur níu stigum frá 2. sætinu og sjö stigum fyrir ofan fallsæti þegar sjö umferðir eru eftir.

Næsti leikur liðsins er heimaleikur gegn Kára 8. ágúst.
Þekktur fyrir flikk-flakk innköstin sín á árum áður.

Þekktur fyrir flikk-flakk innköstin sín á árum áður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar15+1832
2Selfoss15+729
3Kári15+1525
4Fjölnir15+522
5Víkingur Ó.15-422
6Kormákur/Hvöt15+1121
7Dalvík/Reynir15-120
8Magni15-1418
9KFA15+317
10Þróttur V.15-516
11Hvíti riddarinn15-1013
12KFG15-2513
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.