29.07.26 - 19:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeildin: Svekkjandi tap hjá Víkingum - Fara til Sviss

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hapoel Be'er Sheva 2 - 0 Víkingur R. (3-2 samanlagt)
1-0 Zahi Ahmad ('65 )
2-0 Amir Ganah ('80 )
Lestu um leikinn
1-0 Zahi Ahmad ('65 )
2-0 Amir Ganah ('80 )
Lestu um leikinn
Víkingur er úr leik í forkeppni Meistaradeildarinnar eftir tap gegn ísraelska liðinu Hapoel Be'er Sheva í Ungverjalandi í kvöld.
Víkingar urðu fyrir áfalli snemma leiks þegar Tarik Ibrahimagic og Óskar Borgþórsson þurftu að fara af velli vegna meiðsla.
Aron Elís Þrándarson fékk dauðafæri til að koma Víkingum yfir en skot hans var varið í horn. Stuttu síðar átti Gylfi Þór Sigurðsson frábæran sprett frá miðju en sendingin slök. Sveinn Margeir Hauksson náði boltanum og átti sendingu í varnarmann og boltinn fór rétt framhjá.
Hapoel náði forystunni í leiknum eftir klukkutíma leik þegar Zahi Ahmad skallaði boltann í netið. Hapoel var því búið að jafna einvígið.
Hapoel náði góðum tökum á leiknum og Amir Ganah bætti öðru markinu við og kom Ísraelunum yfir í einvíginu. Ahmad kom boltanum í netið stuttu síðar en markið var dæmt af vegna rangstöðu.
Það var rosaleg dramatík í lokin þegar Víkingur fékk vítaspyrnu þegar markvörður Hapoel braut á Sveini Margeiri í uppbótatíma. Hann var hins vegar sendur í skjáinn og sneri dómnum við.
Gríðarlega svekkjandi fyrir Víkinga sem eru úr leik í Meistaradeildinni. Liðið fer hins vegar í forkeppni Evrópudeildarinnar og mætir svissneska liðinu Thun.