Fotbolti.net
30.07.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kristján Flóki í tveggja leikja bann fyrir að traðka á Ívari

Kristján Flóki í tveggja leikja bann fyrir að traðka á Ívari
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur dæmt Kristján Flóka Finnbogason, leikmann FH, í tveggja leikja bann fyrir að traðka á Ívari Erni Árnasyni, leikmanni Breiðabliks, í leik liðanna þann 20. júlí síðastliðinn.
Myndir: Kristján Flóki steig á Ívar - Fer hann í bann?
TENGT EFNI

Myndir: Kristján Flóki steig á Ívar - Fer hann í bann?

FH gerði athugasemd þess við að málinu hafi verið vísað til agaog úrskurðarnefndar viku eftir að leikurinn fór fram og að félagið hafi ekki verið upplýst um málið fyrr. Þá telja þeir að um óviljaverk hafi verið að ræða og hann hafi flækst í fótum Ívars.

Kristján Flóki baðst afsökunar og þeir skildu sáttir að leikslokum.

„Nefndin fær ekki séð að þar sé hægt að greina að um hafi verið óviljaverk að ræða. Að mati aga- og úrskurðarnefndar er um að ræða alvarlegt agabrot sem felur í sér ofsalega framkomu og varði viðurlögum samkvæmt 13. gr. reglugerðar KSÍ um aga- og úrskurðarmál. Aga- og úrskurðarnefnd lítur á sem svo að um sé að ræða háttsemi sem geti valdið alvarlegum meiðslum. Með vísan til alls framangreinds er það mat aga- og úrskurðarnefndar að leikmaðurinn skuli sæta tveggja leikja banni í Íslandsmóti vegna háttsemi sinnar. Leikbann tekur gildi kl. 12:00 næsta dag eftir birtingu úrskurðar," kemur fram í úrskurði aga- og úrskurðarnefndar.

Heimild: KSÍ

Kristján Flóki í tveggja leikja bann fyrir að traðka á Ívari
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.