Fotbolti.net
30.07.26 - 08:32
Elvar Geir Magnússon

Howe hættir óvænt hjá Newcastle

Eddie Howe er hættur hjá Newcastle.

Eddie Howe er hættur hjá Newcastle.

Canon

Mynd: EPA

Breska ríkisútvarpið greinir frá því að Eddie Howe sé skyndilega hættur sem stjóri Newcastle. Það var pressa á Howe eftir síðasta tímabil þegar Newcastle hafnaði í tólfta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa tapað 17 af 38 leikjum.

Síðasti leikur Howe við stjórnvölinn var 4-1 tap gegn Bristol City í æfingaleik á miðvikudag. Hann var fimm ár með stjórnartaumana hjá Newcastle og stýrði liðinu til sigurs í deildabikarnum á síðasta ári.
Lykilmenn farnir
Newcastle hefur selt frá sér lykilmennina Sandro Tonali og Anthony Gordon í sumar og þá er Arsenal að eltast við fyrirliðann Bruno Guimaraes. Heimildir BBC segja að Howe hafi verið hissa á sumarglugganum.

Fyrr á árinu hafði Howe hinsvegar ákveðið að vera áfram á St James’ Park þrátt fyrir að vera meðvitaður um að félagið þyrfti að selja í sumar. Viðhorf hans hafi hinsvegar breyst yfir sumarið og hann ákveðið að láta af störfum.

Fyrsti leikur Newcastle í ensku úrvalsdeildinni verður enginn barnaleikur, gegn Liverpool 23. ágúst.
Howe hættir óvænt hjá Newcastle
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.