Fotbolti.net
30.07.26 - 09:15
Elvar Geir Magnússon

Madrídingar bjartsýnir á að fá Rodri

Gæti Real Madrid náð samkomulagi um Rodri í dag?

Gæti Real Madrid náð samkomulagi um Rodri í dag?

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Það er kominn fimmtudagur og allir í gír enda verslunarmannahelgi framundan. Mikið er rætt og ritað um Rodri þessa dagana og spurning hvort hann endi með því að spila á Spáni á komandi tímabili.
Real Madrid er bjartsýnt á að fá spænska miðjumanninn Rodri (30)m sem á eitt ár eftir af samningi sínum við Manchester City, fyrir um 34-43 milljónir punda. Samkomulag gæsi nást eftir fund í dag. (AS)

Ítalska félagið Inter gæti gert aðra tilraun til að fá enska miðjumanninn Curtis Jones (25) frá Liverpool. Inter er að fá miðvörðinn John Stones (32) á frjálsri sölu en það gæti eyðilagt vonir Cristian Romero (28) um að ganga í raðir ítalska félagsins frá Tottenham. (Gazzetta dello Sport)

Juventus hefur náð samkomulagi við Paris St-Germain um kaup á franska sóknarmanninum Randal Kolo Muani (27). Hann kemur fyrst á láni en ítalska félagið er skyldugt til að kaupa. (Sky Sports Italia)

Brentford er nálægt því að tryggja sér miðjumanninn Mamadou Sangare (24) frá Lens en hann fyllir skarð Jordan Henderson. (Evening Standard)

26 milljóna punda tilboði Aston Villa í brasilíska framherjann Allan (22) var hafnað af Pameiras. (ESPN)

Hull City er í viðræðum við Aston Villa um kaup á jamaíska kantmanninum Leon Bailey (28). (Sky Sports)

Fulham færist nær því að fá tvo Spánverja frá Real Madrid; sóonarmiðjumanninn Cesar Palacios (21) og sóknarmanninn Gonzalo Garcia (22). Alvaro Arbeloa, stjóri Fulham, þekkir þá vel enda stýrði hann Madrídarliðinu á síðasta tímabili. (Athletic)

Belgíska félagið Royale Union Saint-Gilloise hefur hafnað 20 milljóna punda tilboði Nottingham Forest í ísraelska landsliðsmanninn Anan Khalaili (21) sem getur spilað sem vængbakvörður eða hægri kantmaður. (Athletic)

Nottingham Forest vinnur að því að fá portúgalska miðjumanninn Gustavo Sa (21) frá Famalicao. Félagið mun svo væntanlega lána hann til systurfélags síns Olympiakos í Grikklandi. (Athletic)

Manchester United er opið fyrir því að selja tékkneska markvörðinn Radek Vitek (22) og enska varnarmanninn Harry amass (19). Þá gætu miðjumennirnir Toby Collyer (22) og Dan Gore (21) einnig fært sig um set. (Mail)

Crystal Palace er ekki að ná að kaupa franska varnarmanninn Chrislain Matsima (24) frá Augsburg og er farið að skoða aðra möguleika. (Standard)

Ipswich Town vill fá enska varnarmanninn Henry Lawrence (24) sem spilaði áður fyrir Chelsea. Hann er nú hjá Standard Liege. (Football Insider)
Curtis Jones.

Curtis Jones.

Canon

Mynd: EPA

Kolo Muani var hjá Juve 2025 á lánssamningi.

Kolo Muani var hjá Juve 2025 á lánssamningi.

Canon

Mynd: Juventus

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.