Fotbolti.net
30.07.26 - 09:51
Kári Snorrason

Markús Andri til AZ Alkmaar (Staðfest)

Skrifar undir þriggja ára samning við hollenska félagið.

Skrifar undir þriggja ára samning við hollenska félagið.

Canon

Mynd: AZ Alkmaar

Hinn efnilegi Markús Andri Daníelsson Martin er genginn í raðir AZ Alkmaar frá Stjörnunni. Hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið.

Þessi sextán ára hafsent fór í síðasta mánuði út á reynslu til AZ þar sem hann stóð sig vel með 17 ára liðinu.
Markús Andri heillaði Hollendinga á reynslu hjá AZ
TENGT EFNI

Markús Andri heillaði Hollendinga á reynslu hjá AZ

Markús er Hvergerðingur sem gekk í raðir Stjörnunnar í vetur. Hann hefur fimm sinnum verið í leikmannahópi Garðabæjarliðsins á tímabilinu.

Hann er fæddur árið 2010 og hefur þegar spilað 20 leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.