Heimir: Frábært að hafa áhorfendur
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Guðjónsson þjálfari Vals var ansi sáttur í leikslok eftir 1-0 sigur á HK í haustrigningunni á Origovellinum í kvöld.<br />
<br />
<em>"Heldur betur sáttur, þetta var hörkuleikur gegn góðu HK liði. Við lentum í vandræðum með fremstu mennina þeirra og fyrirgjafirnar en okkur tókst að seiglast í gegnum þetta."</em>

Það var rok á annað markið og rigning sem hafði töluverð áhrif á leikinn.
"Jújú, en þetta er eitthvað sem menn mega eiga von á - gömlu góðu haustlægðirnar mættar og þá er erfiðara að spila fótbolta en ég held að bæði lið hafi gert það eins vel og mögulegt var."
Markið kom eftir að dampurinn í leiknum virtist vera að detta niður en Patrick Pedersen er maður sem ekki má gleymast í teignum.
"Við vorum að skapa okkur fannst mér og svo á Aron rispu og gott skot sem Patrick fylgdi eftir og þá bökkuðum við niður og héldum þessu."
Sjö stiga forskot, er ekki mótið að teiknast upp eftir handriti Valsara?
"Það er fínt að vera á toppnum, það vilja allir vera þar en hlutirnir eru fljótir að breytast i fótbolta, við þurfum að halda einbeitingu og vinna áfram í okkar málum"
Hvernig var að vera kominn með smá líf í stúkuna þar sem að 100 manns fengu aðgang?
"Það var frábært, áhorfendur voru flottir og peppuðu okkur áfram sérstaklega í restina."
Nánar er rætt við Heimi í viðtalinu sem fylgir.