Luis Enrique segir að félagið þurfi að vera duglegt á leikmannamarkaðnum í sumar eftir sterkt tímabil hjá liðinu.
PSG vann frönsku deildina en komst ekki í úrslit í franska bikarnum. Liðið komst hins vegar í úrslit Meistaradeildarinnar og vann keppnina annað árið í röð, í þetta sinn eftir vítaspyrnu gegn Arsenal.

Útileikmennirnir sem byrjuðu leikinn í gær voru þeir sömu og byrjuðu í úrslitunum árið 2025 þegar liðið vann 5-0 sigur á Inter. Gianluigi Donnarumma var í markinu fyrir ári síðan en Matvey Safonov var í markinu í gær.
„VIð viljum endurnyja hópinn því allir vita sína stöðu en við þurfum að geta spilað upp á stöðurnar með nýjum leikmönnum," sagði Enrique.
Nasser Al-Khelaifi, forseti PSG, hrósaði stjóranum í hástert eftir leikinn.
„Hann er besti þjálfari í heimi. Hann hefur gert stórkostlega hluti með liðið. Með ungt lið, þið þekkið söguna. Ég vil líka þakka leikmönnunum. Þeir gáfu allt í þetta verkefni."