Fotbolti.net
31.07.18 - 22:32
Sævar Ólafsson

Fúsi: Vonandi að við náum að sigla einum leikmanni inn fyrir lokun gluggans

Auglýsing
Fúsi: Vonandi að við náum að sigla einum leikmanni inn fyrir lokun gluggans
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vigfús Arnar Jósepsson þjálfari Leiknis var tekinn tali eftir 2-2 jafntefli í Breiðholti í dag í kaflaskiptum af leik gegn Fram.

<i>“Fyrri hálfleikurinn hjá okkur var ekki alveg nógu góður og við vorum langt frá mönnunum, náðum ekki alveg að stimpla þá í varnarleiknum vorum í smá basli þar“</i>

<i>“Sævar skorar mjög gott mark en svo fáum við tvö mörk á okkur þar sem við erum ekki alveg að gera réttu hlutina í varnarleiknum og við vorum helvíti svekktir með það“</i>
Leiknisliðið mætti hinsvegar allt annað til síðari hálfleiks og réði ferðinni eftir að hafa elt gestina langtímunum saman í þeim fyrri

“Við fórum yfir það í hálfleik og ákváðum að spýta svolítið í lófana og seinni hálfleikur var töluvert betri og hefðu getað – áttum bara að taka sigurinn“ hafði Vigfús um breytingu á leik sinna manna í síðari hálfleik að segja en með sanni má segja að Leiknisliðið hafi sloppið ágætlega með að vera aðeins marki undir eftir fyrri hálfleikinn

“Við leiðréttum aðeins skipulagið út á velli og börðum aðeins í menn að þeir þyrftu að koma aðeins út úr skelinn og þyrftu að stimpla þá meira og vera aðeins aggresífari í varnarleiknum og þegar það gerist þá náum við strax betra control á boltanum og fáum að sjá meira af boltanum“

Lokametrar mótsins eru fyrir höndum og ljóst að Leiknisliðið er að missa tvo leikmenn, en Daði Bærings Halldórsson og Anton Freyr Ársælsson eru báðir að yfirgefa félagið. Daði fer erlendis á nýjan leik í nám á meðan að Anton Freyr var kallaður til baka af Fjölnismönnum í morgunsárið.

“Já við erum orðnir frekar þunnskipaðir – en að er vonandi að við náum að sigla einum leikmanni inn fyrir lok gluggans, það er von mín en við sjáum til hvað gerist“

“Það er miðjumaður sem við erum að leitast eftir og það kemur bara í ljós núna á næstu klukkutímum hvort það verði eitthvað af því“ hafði Vigfús um leikmannamál Leiknis að segja fyrir lokametrana og bætti við að sá leikmaður væri erlendis frá og því ljóst að félagið er í kapphlaupi við tímann um að ná að landa þeim leikmanni fyrir lokun gluggans á miðnætti.

Allt viðtalið má nálgast hér í spilaranum að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.