Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 31. júlí 2021 12:49
Brynjar Ingi Erluson
Icardi verður áfram hjá PSG
Mauro Icardi
Mauro Icardi
Mynd: Getty Images
Argentínski framherjinn Mauro Icardi verður áfram hjá franska félaginu Paris Saint-Germain.

Þessi 28 ára gamli leikmaður kom til PSG frá Inter á láni frá tveimur árum síðan en franska félagið keypti hann svo frá Inter fyrir 70 milljónir evra á síðasta ári.

Hann hefur skorað 33 mörk í 62 leikjum með PSG en þrátt fyrir það hefur verið orðómur um að PSG vilji losa sig við hann.

Icardi er ákveðinn í að vera áfram hjá PSG og segist ekki á förum í sumar.

„Ég verð hér næstu tvö árin. Það kom aldrei neitt annað til greina," sagði Icardi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner