Morten Beck: Til þess er ég hérna
Auglýsing

Morten Beck Guldsmed skoraði þrennu í dag.

Mynd: Getty Images

Morten Beck Guldsmed, framherji FH, skoraði þrennu í 3-1 sigri gegn Stjörnunni á Samsung vellinum í kvöld og var fyrir vikið valinn maður leiksins.
„Við byrjuðum leikinn vel en misstum svo aðeins stjórnina. Í seinni hálfleik vorum við skynsamari og ég er mjög ánægður með mörkin. Það er gott að geta hjálpað liðinu með því að skora mörk. Til þess er ég hérna " sagði Morten eftir leikinn.

Stjörnumenn komust yfir undir lok fyrri hálfleiks og leiddu allt þar til á 62.mínútu þegar að Morten Beck skoraði fyrsta mark sitt og FH í leiknum.
„Mér fannst við ekki breyta miklu í seinni hálfleik. Við töluðum um að við þyftum að vinna fleiri návígi, vera skynsamir og stjórna leiknum betur. Mér fannst við gera það í seinni hálfleik."
FH-ingar fengu Morten Beck Guldsmed til sín í glugganum í sumar og hefur hann komið vel inní liðið. Þetta er í annað skipti sem að Morten spilar hérlendis en hann var samningsbundinn KR hér áður fyrr.
„Mér líður vel hérna. Það eru frábærir strákar í liðinu og í kringum klúbbinn. Ég er mjög sáttur." sagði Morten Beck.
Nánar er rætt við Morten Beck í spilaranum að ofan.