Arsene Wenger hefur gefið það í skyn að Jack Wilshere muni ekki spila með Arsenal á komandi tímabili.
Wilshere spilaði með Bournemouth á láni á síðasta tímabili.
Hinn 25 ára gamli Wilshere hefur verið að glíma við erfið meiðsli undanfarin ár, en hann fótbrotnaði undir lok síðasta tímabils.
Wilshere spilaði með Bournemouth á láni á síðasta tímabili.
Hinn 25 ára gamli Wilshere hefur verið að glíma við erfið meiðsli undanfarin ár, en hann fótbrotnaði undir lok síðasta tímabils.
Hann kemur ekki til með að fá mörg tækifæri með Arsenal og Wenger telur að það sé best fyrir hann að fara.
„Við þurfum að setjast niður og ákveða hvert hann hann mun fara," sagði Wenger á blaðamannafundi í gær.
„Hann hefur farið í gegnum erfiða tíma. Ég vil að hann spili einhvers staðar. Við munum taka ákvörðun um það síðar."
Athugasemdir