Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   þri 08. apríl 2014 20:46
Alexander Freyr Tamimi
Myndband: Sló Mourinho heimsmet Usain Bolt?
Mourinho er léttur á fæti.
Mourinho er léttur á fæti.
Mynd: Getty Images
Það verður seint sagt um Jose Mourinho að hann sé ekki sigurvegari. Þrá hans til að vinna leiki er engu lík og það sást þegar Demba Ba kom Chelsea í 2-0 gegn Paris Saint-Germain í kvöld.

Markið dugði Chelsea til að fara áfram í undanúrslit Meistaradeildarinnar og tók Jose Mourinho ótrúlegan sprett meðfram hliðarlínunni og að hornfánanum eftir þetta dramatíska mark.

Mourinho var þó ekki einu sinni að fagna, heldur lét hann leikmenn sína alla fá fyrirmæli um það hvernig þeir gætu klárað leikinn.

Hér að neðan má sjá sprett Mourinho, sem gefur Jamaíka-manninum Usain Bolt ekkert eftir.


Athugasemdir
banner
banner
banner