Pyry Soiri er nýjasta þjóðhetja Íslendinga ef svo má segja.
Hann skoraði jöfnunarmark Finna gegn Króatíu á föstudaginn, en það varð til þess að Ísland komst á topp riðils síns í undankeppni HM. Ísland er með örlögin í höndum sér og getur bókað farseðilinn til Rússlands með sigri á Kosóvó á morgun.
Hann skoraði jöfnunarmark Finna gegn Króatíu á föstudaginn, en það varð til þess að Ísland komst á topp riðils síns í undankeppni HM. Ísland er með örlögin í höndum sér og getur bókað farseðilinn til Rússlands með sigri á Kosóvó á morgun.
Á Twitter var kallað eftir fálkaorðu á Soiri og í gær var hann í skemmtilegu útvarpsviðtali í útvarpsþættinum Fótbolta.net. Þar þakkaði hann Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, fyrir kveðju sem hann fékk frá honum.
Heimir Hallgrímsson og Aron Einar Gunnarsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í dag, en þeir voru spurðir út í Soiri.
„Þetta kemur okkur ekkert við í rauninni," sagði Aron Einar, landsliðsfyrirliði, aðspurður út í Soiri.
„Þetta er verkefni fyrir okkur á morgun og við erum að einbeita okkur að því. Við erum ekkert að spá í því hver skoraði fyrir Finnana."
Sjá einnig:
Hver er þessi Pyry Soiri?
Fótbolti.net er með alla anga úti í umfjöllun um leikinn gegn Kosóvó og hægt er að fylgjast með bak við tjöldin á samskiptamiðlum okkar, þar á meðal Fotboltinet á Snapchat.
Leikurinn verður í beinni textalýsingu hérna
Staðan? Skoðaðu möguleikana í riðli Íslands
Smelltu hér til að sjá líkegt byrjunarlið
Með því að smella hér má hlusta á ítarlega upphitun fyrir leikinn úr útvarpsþættinum
Verið með okkur á þessum RISA leikdegi með því að nota #fotboltinet kassamerkið á Twitter 🇮🇸🇮🇸🇮🇸 pic.twitter.com/gari9vZKs5
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) October 9, 2017
Athugasemdir