Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24393 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR14.07.2025, 08:30

Frá Norwich til Porto (Staðfest)

Porto hefur staðfest komu Borja Sainz frá Norwich en félagið kaupir hann á 14,5 milljónir punda. Sainz er 24 ára gamall spænskur vængmaður. Hann gekk til liðs við Norwich frá Giresunspor í Tyrklandi árið 2023. Hann lék 82 leiki fyrir Norwich og skoraði 27 mörk.

FRÉTTIR12.07.2025, 16:30

Orkun Kokcu til Besiktas (Staðfest)

Tyrkneski miðjumaðurinn Orkun Kokcu var í dag kynntur hjá Besiktas í heimalandinu en hann kemur frá Benfica í Portúgal.

FRÉTTIR12.07.2025, 15:38

Elías Már skrifar undir í Kína (Staðfest)

Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson hefur gert eins árs samning við kínverska félagið Meizhou Hakka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu á Instagram í dag.

FRÉTTIR12.07.2025, 11:30

Malik Tillman til Leverkusen (Staðfest)

Bandaríski landsliðsmaðurinn Malik Tillman hefur gengið frá félagaskiptum sínum frá PSV til Bayer Leverkusen. Hann gerir samning til 2030.

FRÉTTIR12.07.2025, 10:55

Diljá Ýr til Brann (Staðfest)

Íslenska landsliðskonan Diljá Ýr Zomers er gengin til liðs við norska félagið Brann frá Leuven.

FRÉTTIR12.07.2025, 09:00

Porto gengur frá kaupum á Samu (Staðfest)

Portúgalska stórveldið FC Porto er búið að festa kaup á framherjanum öfluga Samu Aghehowa, sem er sá leikmaður sem hækkaði hvað mest í verði í heimsfótboltanum í vetur.

FRÉTTIR11.07.2025, 17:21

ÍA fær reynslumikinn miðjumann frá Danmörku (Staðfest)

ÍA hefur gengið frá samningi við danska miðjumanninn Jonas Gemmer um að leika með liðinu út tímabilið 2027. Gemmer er 29 ára varnarsinnaður miðjumaður sem kemur frá danska félaginu Hvidövre. <i>„Hann hefur allan sinn feril spilað í Danmörku og á að baki yfir 150 leiki í dönsku úrvalsdeildinni, með Hvidovre, AC Horsens og FC Midtjylland. Þá á Jonas að baki 28 landsleiki með yngri landsliðum Danmerkur. Jonas er nú þegar fluttur til Íslands, byrjaður að æfa með liðinu og verður kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn KA um næstu helgi,"</I> segir í tilkynningu ÍA.

FRÉTTIR11.07.2025, 17:00

Ruben van Bommel keyptur til PSV (Staðfest)

Hollenska stórliðið PSV hefur tilkynnt um kaup á Ruben van Bommel sem er sonur Mark van Bommel sem er goðsögn hjá PSV og fyrrum landsliðsmaður. Ruben er tvítugur sem var hjá PSV á árunum 2013-2020, hann fór svo til MVV Maastricht og síðar til AZ Alkmaar. PSV greiðir AZ 16 milljónir evra og AZ fær 10% af næstu sölu.

FRÉTTIR11.07.2025, 15:00

Cunha til Nottingham Forest (Staðfest)

Nottingham Forest hefur gengið frá kaupum á brasilíska varnarmanninum Jair Cunha sem kemur frá Botafogo í Brasilíu. Kaupverðið er óuppgefið en talið vera á bilinu 10-12 milljónir evra. Cunha er tvítugur hafsent og skrifar undir fimm ára samning á City Ground.

FRÉTTIR11.07.2025, 12:30

Sosa til Palace (Staðfest)

Króatíski varnarmaðurinn Borna Sosa, sem hefur skorað tvö mörk í 26 landsleikjum, er genginn í raðir Crystal Palace. Hann er keyptur frá Ajax fyrir um 3 milljónir punda. Hann er 27 ára sóknarþenkjandi bakvörður sem mun veita Tyrick Mitchell samkeppni en Palace mun spila í Evrópu á komandi tímabili.

FRÉTTIR11.07.2025, 12:00

Þór fær danskan sóknarmann (Staðfest) - Kemur einn frá KA líka?

Þór hefur krækt í danska sóknarmanninn Christian Jakobsen, sem oftast er kallaður Greko, en hann kemur frá Hvidövre í dönsku B-deildinni. Greko, sem er 32 ára, skrifar undir samning sem gildir út 2027. Hann hefur á sínum ferli leikið með Lyngby, Bröndby, Roskilde og SönderjyskE þar sem hann varð bikarmeistari 2020; var þá liðsfélagi Eggerts Gunnþórs Jónssonar.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.