Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24381 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR30.04.2026, 10:19

Alexander Veigar tekur við KV (Staðfest)

Alexander Veigar Þórarinsson hefur verið ráðinn nýr þjálfari KV og mun stýra liðinu í 3. deild karla í sumar. Orri Fannar Þórisson og Davíð Guðrúnarson hættu sem þjálfarar KV í janúar síðastliðnum.

FRÉTTIR30.04.2026, 09:30

Snýr aftur í Víking eftir stutt lán (Staðfest)

Markvörðurinn Hrafnhildur Hjaltalín sneri aftur í Víking í gær eftir stutt lán hjá Gróttu. Hrafnhildur er fædd árið 1999 og kemur frá Gróttu þar sem hún spilaði einn leik í Mjólkurbikarnum, í 2-1 tapi gegn Fylki.

FRÉTTIR30.04.2026, 09:20

Nýliðarnir kræktu í efnilegan leikmann frá FH (Staðfest)

Grindavík/Njarðvík, sem eru nýliðar í Bestu deild kvenna, náðu að krækja í efnilegan leikmann áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gærkvöldi. Hildur Katrín Snorradóttir er komin á láni frá FH út komandi keppnistímabil.

FRÉTTIR30.04.2026, 09:15

Parker farinn frá Burnley eftir fallið (Staðfest)

Scott Parker er hættur sem stjóri Burnley, átta dögum eftir að liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni. Sagt er að um sameiginlega ákvörðun hans og félagsins hafi verið að ræða. Undir hans stjórn vann Burnley sigur í B-deildinni fyrir ári síðan eftir að hafa farið í gegnum 33 leiki án ósigurs. Liðið hélt markinu hreinu í 30 leikjum. Enska úrvalsdeildin hefur hinsvegar reynst of stórt verkefni fyrir liðið sem er fallið aftur niður í Championship.

FRÉTTIR30.04.2026, 08:50

Endurnýja kynnin við Magna (Staðfest)

Adam Örn Guðmundsson og Kristinn Þór Rósbergsson eru gengnir til liðs við Magna. Báðir þekkja þeir vel til hjá Magna en Adam gekk til liðs við Magna frá KFA þar sem hann var í eitt ár eftir þriggja ára dvöl í Magna. Hann er uppalinn fyrir austan en spilaði einnig með KA á sínum tíma. Hann hefur spilað 44 leiki og skorað 8 mörk fyrir Magna.

FRÉTTIR30.04.2026, 07:30

Spænskur sóknarmaður í Völsung (Staðfest)

Völsungur hefur staðfest komu Fernando Jimenez til liðsins en hann kemur úr neðri deildunum á Spáni. Hann er 22 ára gamall sóknarmaður og hefur fengið leikheimild. Völsungur gerði jafntefli gegn Leikni í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar, Jimenez er kominn með leikheimild og er von á honum til landsins fljótlega, spurning hvort hann verði klár í slaginn á morgun gegn Aftureldingu í Mosó.

FRÉTTIR29.04.2026, 20:09

Óliver Elís til ÍR á láni (Staðfest)

Óliver Elís Hlynsson er genginn til liðs við ÍR á láni frá Fram út tímabilið. Óliver er uppalinn ÍR-ingur fæddur árið 2004. Hann gekk til liðs við. Fram veturinn 2024. Hann spilaði á láni hjá ÍR seinni hlutann á síðasta tímabili.

FRÉTTIR29.04.2026, 11:42

Alpha Conteh til Keflavíkur á láni (Staðfest)

Félagaskiptaglugganum hér á Íslandi verður lokað á miðnætti í kvöld. Keflavík hefur fengið til sín kantmanninn Alpha Conteh á láni frá Stjörnunni út tímabilið.

FRÉTTIR28.04.2026, 19:27

Pálmi fær stöðuhækkun hjá HK (Staðfest)

Pálmi Þór Jónasson hefur fengið stöðuhækkun hjá HK og er orðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna eftir að hafa starfað sem aðalþjálfari 4. flokks frá síðasta hausti.

FRÉTTIR27.04.2026, 23:24

Anton Ari hjá Blikum til 2028 (Staðfest)

Anton Ari Einarsson, markvörður Breiðabliks, hefur undirritað nýjan tveggja ára samning við félagið, en þetta tilkynnti hann eftir 4-0 stórsigurinn á Þór í kvöld.

FRÉTTIR27.04.2026, 10:55

Frá Stjörnunni í Val (Staðfest)

Markvörðurinn Vera Varis hefur fengið félagaskipti til Vals og er því orðinn leikmaður félagsins. Vera varði mark Stjörnunnar fyrri hluta Bestu deildarinnar eftir að hafa leikið með Keflavík tvö tímabil þar á undan. Á ferli sínum hafði hún spilað í Finnlandi, Bandaríkjunum og Svíþjóð áður en hún hélt til Íslands.

FRÉTTIR27.04.2026, 06:00

Þórhallur Ási og tveir aðrir í Hött (Staðfest)

Höttur hefur gengið frá lánssamningum við þrjá leikmenn, en þeir Þórhallur Ási Aðalsteinsson, Kristófer Máni Sigurðsson og Sigurður Valur Sigurveinsson eru gengnir í raðir félagsins út þetta tímabil.

FRÉTTIR25.04.2026, 06:00

Völsungur fær tvo rétt fyrir fyrsta leik (Staðfest)

Völsungir tilkynnti í gær um komu tveggja nýrra leikmanna fyrir átökin í Lengjudeildinni í sumar í sumar. Indriði Ketilsson er uppalinn Völsungur en hann gekmur til liðsins frá Kormáki/Hvöt þar sem hann spilaði með liðinu í 2. deild síðasta sumar. Hann er tvítugur varnarmaður en hann hefur einnig verið á mála hjá KA.

FRÉTTIR25.04.2026, 06:00

Nýliðarnir fá leikmann frá Víkingi fyrir fyrsta leik (Staðfest)

Grindavík/Njarðvík hefur leik í Bestu deildinni í dag þegar liðið heimsækir Val. Liðið er nýliði í deildinni en félagið kynnti nýjan leikmann til leiks í gær fyrir leikinn í dag. Hún heitir Rakel Sigurðardóttir og er uppalin í Breiðabliki en félagið fékk hana á láni frá Víkingi.

FRÉTTIR24.04.2026, 23:30

Grindavík kaupir Gunnleif Orra (Staðfest)

Gunnleifur Orri Gunnleifsson (2008) er genginn til liðs við Grindavík frá Breiðabliki, hann skrifar undir tveggja ára samning. Gunnleifur er uppalinn í Breiðabliki. Hann kom við sögu í fjórum leikjum í Lengjubikarnum í vetur og var nokkrum sinnum í hópnum síðasta sumar.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.