Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   mán 27. apríl 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Þórhallur Ási og tveir aðrir í Hött (Staðfest)
Þórhallur Ási er kominn aftur í Hött
Þórhallur Ási er kominn aftur í Hött
Mynd: Höttur/Huginn
Höttur hefur gengið frá lánssamningum við þrjá leikmenn, en þeir Þórhallur Ási Aðalsteinsson, Kristófer Máni Sigurðsson og Sigurður Valur Sigurveinsson eru gengnir í raðir félagsins út þetta tímabil.

Þórhallur er öllum hnútum kunnugur hjá Hetti, en hann var keyptur frá félaginu til KA á síðasta ári.

Á síðasta ári gerði hann átta mörk fyrir Hött/Huginn í 2. deildinni áður en hann fór til KA. Hann er nú mættur aftur á láni frá KA og mun leika stórt hlutverk í liðinu í 3. deildinni í sumar.

Kristófer Máni Sigurðsson, annar uppalinn Hattari, kemur til liðsins á láni frá Þór. Hann skipti yfir í Þór í vetur þar sem hann æfði og spilaði á undirbúningstímabilinu og er því klár í leikinn gegn KF í 1. umferð deildarinnar á laugardag.

Þá er Sigurður Valur kominn á láni frá ÍBV. Hann er örvfættur bakvörður og kantmaður sem endurnýjar kynni sín við þjálfarann Todor Hristov, sem þjálfaði Sigurð í Vestmannaeyjum.

Öflug viðbót við leikmannahópinn hjá Hetti
Slapp
banner
banner