Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 19:27
Ívan Guðjón Baldursson
Pálmi fær stöðuhækkun hjá HK (Staðfest)
Kvenaboltinn
Mynd: HK
Pálmi Þór Jónasson hefur fengið stöðuhækkun hjá HK og er orðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna eftir að hafa starfað sem aðalþjálfari 4. flokks frá síðasta hausti.

Pálmi Þór býr yfir góðri reynslu eftir að hafa einnig starfað sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks hjá FHL og Fram þrátt fyrir að vera fæddur árið 1999.

„Það er frábært að fá Pálma inn sem aðstoðarþjálfara og verður hann frábær viðbót inn í það geggjaða teymi sem starfar í kringum meistaraflokk kvenna," segir Kristín Jónsdóttir, varaformaður knattspyrnudeildar HK.

Pálmi er með meistaragráðu í íþróttavísindum og þjálfun og hefur lokið A1 námskeiði hjá KSÍ.

HK leikur í Lengjudeildinni í sumar.


Slapp
banner
banner
banner