Gunnleifur Orri Gunnleifsson (2008) er genginn til liðs við Grindavík frá Breiðabliki, hann skrifar undir tveggja ára samning.
Gunnleifur er uppalinn í Breiðabliki. Hann kom við sögu í fjórum leikjum í Lengjubikarnum í vetur og var nokkrum sinnum í hópnum síðasta sumar.
Gunnleifur er uppalinn í Breiðabliki. Hann kom við sögu í fjórum leikjum í Lengjubikarnum í vetur og var nokkrum sinnum í hópnum síðasta sumar.
Gunnleifur er sonur Gunnleifs Vignis Gunnleifssonar, sem var aðalmarkvörður meistaraflokks Breiðabliks í sjö ár og spilaði 26 A-landsleiki á ferlinum.
Yngri bróðir Gunnleifs, Arnar Bjarki Gunnleifsson, spilaði sinn fyrsta leik þegar hann kom inn á undir lokin í 1-0 sigri Blika á ÍA í 2. umferð í sumar.
Grindavík var í miklum vandræðum í Lengjudeildinni í fyrra en bjargaði sér frá falli og endaði í 10. sæti. Liðinu er spáð 7. sæti af þjálfurum og fyrirliðum deildarinnar í sumar.
Gunnleifur er kominn með leikheimild fyrir fyrsta leik Grindavíkur í Lengjudeildinni gegn Vestra á Ísafirði á morgun.



