Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   lau 25. apríl 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Nýliðarnir fá leikmann frá Víkingi fyrir fyrsta leik (Staðfest)
Kvenaboltinn
Mynd: Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík hefur leik í Bestu deildinni í dag þegar liðið heimsækir Val.

Liðið er nýliði í deildinni en félagið kynnti nýjan leikmann til leiks í gær fyrir leikinn í dag. Hún heitir Rakel Sigurðardóttir og er uppalin í Breiðabliki en félagið fékk hana á láni frá Víkingi.

Tilkynning félagsins
Grindavík/Njarðvík hefur fengið varnarmanninn, Rakel Sigurðardóttur, lánaða frá Víking Reykjavík fyrir átökin framundan í Bestu deildinni í sumar.

Rakel er fædd árið 2007 og er uppalin hjá Breiðablik en hefur leikið með Víking Reykjavík frá árinu 2024.
Rakel á alls 26 meistaraflokksleiki á vegum KSÍ auk þess sem hún á 3 U17 ára landsleiki.

Á síðustu leiktíð kom Rakel við sögu í 6 leikjum í Bestu deildinni með Víkingi Reykjavík.

Rakel hefur hafið æfingar með liðinu og er klár í slaginn fyrir fyrsta leik tímabilsins í Bestu deildinni þegar stelpurnar mæta Val á Hlíðarenda á morgun!

Við bjóðum Rakel hjartanlega velkomna til Grindavíkur/Njarðvíkur!
Slapp
banner
banner