Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   lau 25. apríl 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Völsungur fær tvo rétt fyrir fyrsta leik (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Völsungur
Völsungir tilkynnti í gær um komu tveggja nýrra leikmanna fyrir átökin í Lengjudeildinni í sumar í sumar.

Indriði Ketilsson er uppalinn Völsungur en hann gekmur til liðsins frá Kormáki/Hvöt þar sem hann spilaði með liðinu í 2. deild síðasta sumar. Hann er tvítugur varnarmaður en hann hefur einnig verið á mála hjá KA.

Dagbjartur Búi Davíðsson er einnig genginn til liðs við félagið en hann kemur frá KA. Hann hefur leikið með KF, Dalvík/Reyni og Þór á láni en hann var hjá Þór síðasta sumar.

Þeir verða klárir í slaginn þegar Völsungur mætir Leikni í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar í dag.
Slapp
banner
banner