Róbert William G. Bagguley er genginn í raðir Reynis Sandgerði á láni frá Njarðvík.
Róbert er fæddur árið 2004 og uppalinn í Njarðvík, en hann þreytti frumraun sína með meistaraflokki árið 2022.
Þá lék hann 7 leiki í 2. deild ásamt því að spila einn bikarleik, en lék ekkert með liðinu árið á eftir.
Síðustu tvö ár hefur hann spilað á láni hjá Víði og Þrótt Vogum, en er nú kominn á lán til Reynis sem leikur í 3. deild.
Tommy Nielsen tók við Sandgerði í nóvember á síðasta ári og hefur fengið marga öfluga leikmenn í vetur.
Fyrsti leikur Reynis verður gegn Árbæ á laugardag, en hann er spilaður á Brons-vellinum í Sandgerði.



