Markvörðurinn Vera Varis hefur fengið félagaskipti til Vals og er því orðinn leikmaður félagsins.
Vera varði mark Stjörnunnar fyrri hluta Bestu deildarinnar eftir að hafa leikið með Keflavík tvö tímabil þar á undan. Á ferli sínum hafði hún spilað í Finnlandi, Bandaríkjunum og Svíþjóð áður en hún hélt til Íslands.

Vera er fædd árið 1994 og er frá Finnlandi. Hún á að baki fjöldan allan af leikjum fyrir yngri landslið Finna og hefur verið valin í A-landsliðið.
Tinna Brá Magnúsdóttir er aðalmarkvörður Vals og á bekknum gegn Grindavík/Njarðvík í fyrstu umferð Bestu deildarinnar var Esther Júlía Gustavsdóttir.