Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   mán 27. apríl 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Þengill aftur í Fjölni (Staðfest) - „Ætlum okkur stóra hluti“
Mynd: Fjölnir
FJölnir hefur fengið varnarmanninn Þengil Orrason aftur á láni frá Fram, en hann lék einnig með liðinu á síðustu leiktíð.

Þengill er fæddur árið 2005 og þekkir vel til hjá Fjölni eftir að hafa leikið með yngri flokkum félagsins.

Á síðustu leiktíð lék hann 12 leiki með Fjölni í Lengjudeildinni áður en hann sneri aftur í Fram.

Hann hóf undirbúningstímabilið með Frömurum en er nú kominn aftur á lán í Fjölni og mun spila með liðinu út tímabilið.

„Geggjað að vera kominn aftur í Fjölni. Ég hvet alla til að mæta á völlinn í sumar og styðja okkur, þar sem við ætlum okkur stóra hluti í sumar. Áfram Fjölnir!“ sagði Þengill við undirskrift.

Fjölnir hafnaði í neðsta sæti Lengjudeildarinnar í fyrra og mun því spila í 2. deild á komandi leiktíð, en fyrsti leikur Fjölnis er gegn Magna á föstudag.
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Dalvík/Reynir 0 0 0 0 0 - 0 0 0
2.    Fjölnir 0 0 0 0 0 - 0 0 0
3.    Haukar 0 0 0 0 0 - 0 0 0
4.    Hvíti riddarinn 0 0 0 0 0 - 0 0 0
5.    KFA 0 0 0 0 0 - 0 0 0
6.    KFG 0 0 0 0 0 - 0 0 0
7.    Kormákur/Hvöt 0 0 0 0 0 - 0 0 0
8.    Kári 0 0 0 0 0 - 0 0 0
9.    Magni 0 0 0 0 0 - 0 0 0
10.    Selfoss 0 0 0 0 0 - 0 0 0
11.    Víkingur Ó. 0 0 0 0 0 - 0 0 0
12.    Þróttur V. 0 0 0 0 0 - 0 0 0
Slapp
banner
banner