Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 08:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Endurnýja kynnin við Magna (Staðfest)
Mynd: Magni
Adam Örn Guðmundsson og Kristinn Þór Rósbergsson eru gengnir til liðs við Magna.

Báðir þekkja þeir vel til hjá Magna en Adam gekk til liðs við Magna frá KFA þar sem hann var í eitt ár eftir þriggja ára dvöl í Magna. Hann er uppalinn fyrir austan en spilaði einnig með KA á sínum tíma. Hann hefur spilað 44 leiki og skorað 8 mörk fyrir Magna.

Kristinn Þór er uppalinn í Þór. Hann hefur spilað með KF, Dalvík/Reyni og Hömrunum ásamt Magna.

Hann spilaði síðast árið 2023 og þá með Magna en hann rífur skóna af hillunni til að spila aftur með liðinu í 2. deild í sumar. Fyrsti leikur liðsins er á morgun þegar liðið heimsækir Fjölni.


Slapp
banner
banner
banner