Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 09:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nýliðarnir kræktu í efnilegan leikmann frá FH (Staðfest)
Kvenaboltinn
Hildur Katrín í leik með ÍH á síðasta tímabili.
Hildur Katrín í leik með ÍH á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík/Njarðvík, sem eru nýliðar í Bestu deild kvenna, náðu að krækja í efnilegan leikmann áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gærkvöldi.

Hildur Katrín Snorradóttir er komin á láni frá FH út komandi keppnistímabil.

Hildur Katrín er fædd 2008 og hefur leikið með ÍH, venslafélagi FH, síðustu ár ásamt því að spila nokkra leiki með FH í Bestu deildinni.

Sumarið 2024 var hún frábær í liði ÍH í 2. deild þar sem hún skoraði 13 mörk í tólf leikjum.

Grindavík/Njarðvík styrkti sig vel í glugganum en liðið leikur sinn annan leik í Bestu deildinni í kvöld gegn Þór/KA.
Slapp
banner
banner