Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 09:15
Elvar Geir Magnússon
Parker farinn frá Burnley eftir fallið (Staðfest)
Scott Parker, stjóri Burnley.
Scott Parker, stjóri Burnley.
Mynd: EPA
Scott Parker er hættur sem stjóri Burnley, átta dögum eftir að liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni. Sagt er að um sameiginlega ákvörðun hans og félagsins hafi verið að ræða.

Undir hans stjórn vann Burnley sigur í B-deildinni fyrir ári síðan eftir að hafa farið í gegnum 33 leiki án ósigurs. Liðið hélt markinu hreinu í 30 leikjum.

Enska úrvalsdeildin hefur hinsvegar reynst of stórt verkefni fyrir liðið sem er fallið aftur niður í Championship.

„Það hafa verið forréttindi að stýra þessu félagi síðustu tvö ár, ég hef notið hverrar stundar af ferðalagi okkar saman. En nú finnst mér rétti tíminn fyrir báða aðila að fara í sitthvora áttina," segir Parker í yfirlýsingu.

Mike Jackson sem er í þjálfarateymi Burnley tekur við sem bráðabirgðastjóri út tímabilið. Liðið á fjóra leiki eftir í ensku úrvalsdeildinni og mætir Leeds á morgun. Í tilkynningu Burnley segir að vinnan við að ráða nýjan stjóra fyrir næsta tímabil sé þegar farin af stað.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 34 17 10 7 60 46 +14 61
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 34 13 9 12 49 46 +3 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner
banner