Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 23:47
Ívan Guðjón Baldursson
Örvar framlengir við Stjörnuna (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Örvar Eggertsson er búinn að framlengja samning sinn við Stjörnuna og er núna samningsbundinn Garðbæingum út tímabilið 2028.

Örvar er lykilmaður í sóknarleik Stjörnunnar sem skoraði 16 mörk í 28 leikjum í deild og bikar í fyrra.

Hann gekk til liðs við Stjörnuna fyrir rúmlega tveimur árum síðan eftir að hafa leikið fyrir Víking R. og HK á ferlinum en hann ólst upp hjá FH.

Hann er þegar kominn með tvö mörk í þremur deildarleikjum á nýju tímabili í Bestu deildinni og eru það því miklar gleðifréttir fyrir Stjörnuna að Örvar sé búinn að skrifa undir.

„Knattspyrnudeild fagnar því að halda Örvari í bláu treyjunni og bindur miklar vonir við hans framlag. Til hamingju Stjarnan og Örvar!" segir meðal annars í tilkynningu frá Stjörnunni.


Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 4 4 0 0 18 - 8 +10 12
2.    Víkingur R. 4 3 1 0 10 - 3 +7 10
3.    Valur 4 3 0 1 10 - 5 +5 9
4.    Breiðablik 4 2 2 0 6 - 1 +5 8
5.    Fram 4 2 1 1 11 - 6 +5 7
6.    Stjarnan 4 2 0 2 10 - 11 -1 6
7.    Þór 4 2 0 2 5 - 10 -5 6
8.    Keflavík 4 1 1 2 5 - 7 -2 4
9.    ÍA 4 0 2 2 4 - 9 -5 2
10.    KA 4 0 1 3 4 - 8 -4 1
11.    FH 4 0 1 3 5 - 11 -6 1
12.    ÍBV 4 0 1 3 5 - 14 -9 1
Slapp
banner
banner
banner