Nýliðarnir gera félagaskipti Onyeka varanleg (Staðfest)
Nýliðar Coventry City hafa fest kaup á nígeríska miðjumanninum Frank Onyeka frá Brentford, en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24378 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Nýliðar Coventry City hafa fest kaup á nígeríska miðjumanninum Frank Onyeka frá Brentford, en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.
Manchester City hefur náð samkomulagi um bótagreiðslur til Chelsea til að geta ráðið Enzo Maresca sem nýjan stjóra. Maresca var fyrsti kostur City til að taka við af Pep Guardiola en hann var aðstoðarmaður hans hjá félaginu um tíma. Maresca hefur verið formlega kynntur hjá City.
Hermann Hreiðarsson hefur verið látinn fara sem þjálfari Vals og mun Chris Brazell, aðstoðarmaður hans, stýra liðinu út tímabilið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hlíðarendafélaginu. Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks, tekur svo við Valsliðinu þann 1. nóvember. Valur er í fimmta sæti Bestu deildarinnar en liðið vann Þór í gær, í síðasta leik Hermanns með stjórnartauma liðsins.
Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson hefur verið seldur frá sænska félaginu Malmö og er genginn í raðir Kalamata á Grikklandi. Kalamata vann grísku B-deildina á liðnu tímabili og spilar í efstu deild á komandi tímabili. Samningur Arnórs við Malmö rennur út eftir næsta tímabil og greiðir gríska félagið fyrir Arnór, að því er segir í tilkynningu Malmö.
Hong Myung-bo hefur sagt starfi sínu sem landsliðsþjálfari Suður-Kóreu lausu eftir vonbrigðin á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Mosfellingurinn Jason Daði Svanþórsson er genginn í raðir KR frá Grimsby Town. Hann skrifaði undir samning út 2027.
Mathys Detourbet er genginn til liðs við Man City en franska félagið Troyes greinir frá félagaskiptunum. Samkvæmt heimildum franska miðilsins L'Equipe kaupir City hann fyrir rúmlega 20 milljónir punda. Þá kemur fram að hann verði hjá Mónakó á láni á næstu leiktíð.
Hollenska félagið Twente hefur staðfest komu framherjans stóra og stæðilega, Wout Weghorst, en hann kemur til félagsins frá Ajax á frjálsri sölu.
Fulham hefur fest kaup á sænska unglingalandsliðsmanninum Jonah Kusi-Asare frá Bayern München fyrir fimm milljónir punda.
Argentíski framherjinn Alejo Veliz er á förum frá Tottenham og er að ganga til liðs við brasilíska félagið Bahia. Samkvæmt heimildum Sky Sports fær Tottenham tæplega átta milljónir punda fyrir þennan 22 ára gamla leikmann.
Guðmundur Andri Tryggvason sé farinn frá KR og er genginn í raðir FH. Hann er uppalinn KR-ingur og hefur spilað 55 leiki og skorað átta mörk fyrir liðið.
Real Madrid og Dani Ceballos hafa komist að samkomulagi um að binda enda á samning spænska miðjumannsins við félagið. Ceballos er 29 ára miðjumaður en hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.
Víkingur hefur gengið frá kaupum á Eiði Orra Ragnarssyni, leikmanni Keflavíkur, og verður hann hluti af leikmannahópi liðsins eftir að yfirstandandi tímabili lýkur. Eiður mun klára tímabilið á láni hjá Keflavík og ganga svo í raðir Víkings. Hann skrifar undir samning sem gildir út árið 2029. Eiður Orri er Vopnfirðingur sem var með lausan samning í haust og var síðasta vetur orðaður við Val. Hann er hægri kantmaður sem fæddur er árið 2004. Hann kom til Keflavíkur eftir að hafa spilað með KFA sumarið 2024. Á síðasta tímabili skoraði hann sex mörk og hjálpaði Keflavík að komast upp úr Lengjudeildinni. Í ár hefur Eiður Orri skorað tvö mörk í deild og bikar og lagt upp þrjú mörk í ellefu deildarleikjum.
Anton Ingi Leifsson hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari danska C-deildarliðsins Hellerup (HIK). Anton, sem er 31 árs, var áður þjálfari U19 liðs HIK en hann hefur starfað hjá félaginu síðan 2018. Félagið er staðsett rétt utan Kaupmannahafnar. Anton er uppalinn í FH en spilaði ekki meistaraflokksleik. Hann er sonur fyrrum fótboltaþjálfarans og körfuboltadómarans Leifs Garðarssonar. HIK endaði í 6. sæti dönsku C-deildarinnar í fyrra en annar íslenskur þjálfari, Fannar Berg Gunnólfsson, vann deildina með AB. Fannar hafði verið aðstoðarþjálfari liðsins en tók við sem aðalþjálfari eftir að Jóhannes Karl Guðjónsson lét af störfum og tók við FH síðasta vetur.
Oliver Stefánsson er genginn í raðir FH eftir að hafa rift samningi sínum við pólska félagið GKS Tychy. Oliver, sem er 24 ára varnarmaður, skrifar undir þriggja ára samning við Fimleikafélagið. Í tilkynningu félagsins segir að hann muni æfa strax með liðinu en hann mun fá leikheimild þegar glugginn opnar á ný þann 16. júlí. Oliver gekk í raðir pólska B-deildar félagsins síðasta haust frá uppeldisfélaginu ÍA og skrifaði þá undir þriggja ára samning. Hann hefur jafnframt verið á mála hjá Norrköping og Breiðabliki á sínum ferli. Hann kom við sögu í 13 deildarleikjum í vetur og lagði upp eitt mark fyrir GKS sem endaði í neðsta sæti pólsku deildarinnar.
Arsenal hefur virkjað kaupákvæði í samningi Ekvadorans Piero Hincapie og hefur hann því gengið varanlega til liðs við Englandsmeistarana. Hincapie gekk til liðs við Arsenal frá Bayer Leverkusen á láni fyrir tæpu ári síðan með ákvæði um að kaupa leikmanninn á 35 milljónir punda.
Tottenham hefur tryggt sér markvörðinn Martin Dubravka sem kemur frá Burnley á frjálsri sölu. Þessi 37 ára Slóvaki var áður hjá Newcastle og Manchester United en hann lék 35 leiki fyrir Burnley í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Markvörðurinn Inaki Pena er genginn í raðir gríska félagsins Panathinaikos frá Spánarmeisturum Barcelona.
Ítalska félagið AC Milan hefur krækt í enska vængmanninn Aurelien Guernier frá enska B-deildarfélaginu Birmingham. Þetta staðfestir enska félagið á heimasíðu sinni.
Bakvörðurinn Davíð Kristján Ólafsson hefur samið við pólska B-deildarfélagið Polonia Warszawa til ársins 2028, en hann kemur frá AEL Larissa í Grikklandi.