Oliver Stefánsson í FH (Staðfest)

Í treyju númer fimm.

Mynd: FH

Í treyju númer fimm.

Mynd: FH
Oliver Stefánsson er genginn í raðir FH eftir að hafa rift samningi sínum við pólska félagið GKS Tychy.
Oliver, sem er 24 ára varnarmaður, skrifar undir þriggja ára samning við Fimleikafélagið.
Í tilkynningu félagsins segir að hann muni æfa strax með liðinu en hann mun fá leikheimild þegar glugginn opnar á ný þann 16. júlí.
Oliver gekk í raðir pólska B-deildar félagsins síðasta haust frá uppeldisfélaginu ÍA og skrifaði þá undir þriggja ára samning. Hann hefur jafnframt verið á mála hjá Norrköping og Breiðabliki á sínum ferli.
Hann kom við sögu í 13 deildarleikjum í vetur og lagði upp eitt mark fyrir GKS sem endaði í neðsta sæti pólsku deildarinnar.