Fotbolti.net
23.06.26 - 21:00
Brynjar Ingi Erluson

Davíð Kristján aftur til Póllands (Staðfest)

Davíð Kristján aftur til Póllands (Staðfest)
Canon

Mynd: Polonia Warszawa

Bakvörðurinn Davíð Kristján Ólafsson hefur samið við pólska B-deildarfélagið Polonia Warszawa til ársins 2028, en hann kemur frá AEL Larissa í Grikklandi.
Yfirgefur Grikkland eftir sex mánaða dvöl - „Get ekki sagst vera pollrólegur“
TENGT EFNI

Yfirgefur Grikkland eftir sex mánaða dvöl - „Get ekki sagst vera pollrólegur“

Davíð er 31 árs gamall og uppalinn í Breiðabliki en hefur leikið erlendis síðustu sjö ár.

Hann var fastamaður hjá Álasundi og Kalmar áður en hann hélt til Cracovia í Póllandi árið 2024.

Davíð lék við góðan orðstír hjá Cracovia en gekk í raðir AEL Larissa í grísku úrvalsdeildinni í byrjun þessa árs og samdi út tímabilið.

Larissa féll niður um deild og ljóst var að Davíð yrði ekki áfram hjá félaginu. Hann sagði í viðtali við Fótbolta.net að draumurinn væri að snúa aftur til Póllands og sá draumur hefur nú ræst.

Blikinn er genginn í raðir Polonia Warszawa, sem hafnaði í 6. sæti pólsku B-deildarinnar á síðustu leiktíð. Liðið tapaði í undanúrslitum umspilsins um sæti í efstu deild.

Polonia lék síðast í efstu deild tímabilið 2012/13 en fékk ekki keppnisleyfi fyrir næsta tímabil vegna fjárhagsvanda og féll niður um deildir í kjölfarið.

Félagið á sér þó ríka sögu, hefur tvisvar orðið pólskur meistari og tvisvar bikarmeistari.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.