Guðmundur Andri genginn í raðir FH (Staðfest)

Mynd: FH

Mynd: FH
Guðmundur Andri Tryggvason sé farinn frá KR og er genginn í raðir FH. Hann er uppalinn KR-ingur og hefur spilað 55 leiki og skorað átta mörk fyrir liðið.
Hann er 26 ára gamall sóknarmaður. Hann hefur glímt við mikil meiðsli undanfarin misseri en hann hefur spilað þrjá leiki í Bestu deildinni á tímabilinu. Í fyrra lagði hann sitt á vogarskálarnar í lok tímabils og hjálpaði KR að halda sér í deildinni.
"Við erum mjög ánægðir með að hafa náð í Guðmund Andra. Hann sýndi það seinni hluta tímabilsins í fyrra hvers hann er megnugur og nú ætlum við að hjálpa honum að komast í toppstand og hann að hjálpa okkur að klífa upp töfluna. Andri er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst allar stöður framarlega á vellinum, virkilega góður fótboltamaður með gott auga fyrir spili og að koma sér í marktækifæri. Við bjóðum Andra hjartanlega velkominn "aftur" í Krikann." segir Davíð Þór Viðarsson við FH media!
Þór, ÍBV og Keflavík sýndu Guðmundi einnig áhuga. Guðmundur Andri fetar í fótspor föður síns Tryggva Guðmundssonar, sem gerði garðinn frægan með FH á sínum tíma.
Hann mun fá leikheimild með FH þegar glugginn opnar þann 16. júli en liðið er í neðsta sæti Bestu deildarinnar.

FH og KR hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Guðmundar Andra Tryggvasonar. Guðmundur Andri gerir samning við FH út tímabilið 2028 og verður löglegur með Fimleikafélaginu 16. júlí ????
— Fimleikafélag Hafnarfjarðar (@fhingar) June 26, 2026
"Við erum mjög ánægðir með að hafa náð í Guðmund Andra. Hann sýndi það seinni hluta… pic.twitter.com/U90mLX7lpy