Fotbolti.net
24.06.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Frá Birmingham til AC Milan (Staðfest)

Frá Birmingham til AC Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: AC Milan

Ítalska félagið AC Milan hefur krækt í enska vængmanninn Aurelien Guernier frá enska B-deildarfélaginu Birmingham. Þetta staðfestir enska félagið á heimasíðu sinni.
Guernier er 18 ára gamall og uppalinn hjá Birmingham en náði aldrei að spila með aðalliði félagsins.

Hann lék með U21 árs liðinu á síðustu leiktíð og kom þar að sex mörkum í 25 leikjum.

Samningur hans rennur út um mánaðamótin og hefur hann ákveðið að leita á vit ævintýranna. Guernier hefur samið við AC Milan og er samningurinn til langs tíma.

Hann mun spila með unglinga- og varaliði Milan á næstu leiktíð, með það að markmiði að brjótast inn í aðalliðið á næstu árum.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.