Weghorst verður liðsfélagi Kristians Nökkva (Staðfest)

Weghorst er mættur til Twente

Mynd: Twente

Weghorst er mættur til Twente

Mynd: Twente
Hollenska félagið Twente hefur staðfest komu framherjans stóra og stæðilega, Wout Weghorst, en hann kemur til félagsins frá Ajax á frjálsri sölu.
Twente hefur átt í viðræðum við Wout Weghorst síðustu vikur og Erik ten Hag, nýr tæknilegur stjórnandi félagsins, hafði áður sagt að draumurinn væri að fá framherjann.
Þeir unnu saman hjá Manchester United árið 2023 og hafa þekkst lengi.
Samstarf þeirra heldur nú áfram en Weghorst er kominn til Twente eftir að hafa hafnað tilboðum frá Spáni, Tyrklandi og Þýskalandi.
Þessi 33 ára gamli framherji hefur skrifað undir tveggja ára samning við Twente og verður því nýr liðsfélagi íslenska landsliðsmannsins Kristians Nökkva Hlynssonar, sem átti frábært tímabil með hollenska liðinu á nýafstaðinni leiktíð.
Weghorst mun þó ekki hefja æfingar strax með Twente enda er hann með hollenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Holland er komið í 32-liða úrslit þar sem það mætir Marokkó en Weghorst hefur ekki komið við sögu á mótinu til þessa.

…???????????????? ???????? ???????? ???????????????????? ???????????????? ????????????????!????#FCTwente pic.twitter.com/b1CjoZTYwB
— FC Twente (@fctwente) June 27, 2026