Fotbolti.net
25.06.26 - 14:34
Kári Snorrason

Arsenal virkjar kaupaákvæðið og tryggir sér Hincapie (Staðfest)

Vann Englandsmeistaratitilinn á sínu fyrsta tímabili með Arsenal.

Vann Englandsmeistaratitilinn á sínu fyrsta tímabili með Arsenal.

Canon

Mynd: EPA

Arsenal hefur virkjað kaupákvæði í samningi Ekvadorans Piero Hincapie og hefur hann því gengið varanlega til liðs við Englandsmeistarana.

Hincapie gekk til liðs við Arsenal frá Bayer Leverkusen á láni fyrir tæpu ári síðan með ákvæði um að kaupa leikmanninn á 35 milljónir punda.
Varnarmaðurinn var í stóru hlutverki hjá meistaraliði Arsenal á nýloknu tímabili en hann spilaði 25 leiki í deild og byrjaði hann 20 þeirra.

Hann er nú staddur á heimsmeistaramótinu með Ekvador en liðið mætir Þýskalandi í kvöld. Ekvadorar þurfa á sigri að halda ef liðið ætlar að komast áfram í 32-liða úrslitin.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.