Anton Ingi Leifsson tekur við Hellerup (Staðfest)

Anton fyrir miðju.

Mynd: HIK

Anton fyrir miðju.

Mynd: HIK
Anton Ingi Leifsson hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari danska C-deildarliðsins Hellerup (HIK).
Anton, sem er 31 árs, var áður þjálfari U19 liðs HIK en hann hefur starfað hjá félaginu síðan 2018. Félagið er staðsett rétt utan Kaupmannahafnar.
Anton er uppalinn í FH en spilaði ekki meistaraflokksleik. Hann er sonur fyrrum fótboltaþjálfarans og körfuboltadómarans Leifs Garðarssonar.
HIK endaði í 6. sæti dönsku C-deildarinnar í fyrra en annar íslenskur þjálfari, Fannar Berg Gunnólfsson, vann deildina með AB.
Fannar hafði verið aðstoðarþjálfari liðsins en tók við sem aðalþjálfari eftir að Jóhannes Karl Guðjónsson lét af störfum og tók við FH síðasta vetur.