Fotbolti.net
27.06.26 - 11:18
Brynjar Ingi Erluson

Fulham kaupir ungstirni af Bayern (Staðfest)

Fulham kaupir ungstirni af Bayern (Staðfest)
Canon

Mynd: Fulham

Fulham hefur fest kaup á sænska unglingalandsliðsmanninum Jonah
Kusi-Asare frá Bayern München fyrir fimm milljónir punda.
Kusi-Asare er 18 ára gamall sóknarmaður sem var á láni hjá Fulham frá Bayern á síðustu leiktíð.

Hann kom við sögu í tíu leikjum með aðalliði Fulham, þar af sjö í ensku úrvalsdeildinni, en félagið hefur nú ákveðið að gera félagaskiptin varanleg.

Kusi-Asare skrifaði undir fimm ára samning við Fulham með möguleika á einu ári til viðbótar. Bayern Munchen mun hafa endurkaupsrétt á sænska U21 árs landsliðsmanninum.

„Ég er ótrúlega ánægður með að vera genginn í raðir Fulham. Fyrsta vikan hefur verið frábær og mér leið strax eins og ég væri hluti af Fulham-fjölskyldunni. Búningsklefinn, liðið og starfsliðið eru til fyrirmyndar og ég er mjög ánægður með að vera kominn til félagsins,“ sagði Kusi-Asare.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.