FRÉTTIR30.08.2024, 21:19

Billy Gilmour er genginn til liðs við Napoli frá Brighton en hann skrifar undir fimm ára samning.

Ítalska félagið borgar 12 milljónir punda fyrir leikmanninn en það gæti hækkað upp í 16 milljónir punda.

FRÉTTIR30.08.2024, 20:58

Orri Steinn Óskarsson er genginn til liðs við Real Sociedad frá FC Kaupmannahöfn.

FRÉTTIR30.08.2024, 20:33

Manchester hefur staðfest komu Manuel Ugarte til félagsins frá PSG.

FRÉTTIR30.08.2024, 20:04

Nat Phillips er genginn til liðs við Derby, sem leikur í Championship deildinni, á láni frá Liverpool út tímabilið.

FRÉTTIR30.08.2024, 19:34

Valgeir Lunddal Friðriksson er genginn til liðs við þýska félagið Fortuna Dusseldorf frá Hacken í Svíþjóð.

FRÉTTIR30.08.2024, 19:11

Scott McTominay er genginn til liðs við Napoli frá Manchester United.

FRÉTTIR30.08.2024, 18:43

Crystal Palace hefur gengið frá kaupum á Maxence Lacroix frá Wolfsburg. Lacroix er miðvörður en hann skrifar undir fimm ára samning við félagið.

FRÉTTIR30.08.2024, 18:14

Manchester United hefur staðfest komu Sekou Kone frá Guidars FC frá Malí. Hann er miðjumaður.

FRÉTTIR30.08.2024, 17:44

Orel Mangala er genginn til liðs við Everton á láni frá Lyon út tímabilið. Aðeins um lánssamning er að ræða svo hann mun snúa aftur til Frakklands næsta sumar.

FRÉTTIR30.08.2024, 16:37
Austurríska félagið Red Bull Salzburg hefur fengið miðjumanninn Stefan Bajcetic á láni frá Liverpool.
Pep Lijnders, fyrrum aðstoðarþjálfari Jürgen Klopp hjá Liverpool, er aðalþjálfari Salzburg í dag og hefur miklar mætur á Bajcetic. Lijnders vill ólmur fá hann til Salzburg.
FRÉTTIR30.08.2024, 16:16
Inter hefur tilkynnt um kaup á argentínska varnarmanninum Tomas Palacios frá Talleres.
Palacios er 21 árs en ítalskir fjölmiðlar segja kaupverðið í kringum 6,5 milljónir evra.
FRÉTTIR30.08.2024, 15:48
Brasilíski markvörðurinn Neto er genginn í raðir Arsenal frá Bournemouth. Hann kemur til Lundúnafélagsins á láni út tímabilið.
Arsenal reyndi að fá Joan García frá Espanyol en það gekk ekki eftir. Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var spurður út í markvarðarmálin á fréttamannafundi í dag og grínaðist þá með það að hann vildi fá Gary Cotterill, fréttamann Sky Sports, í markið hjá sér.
FRÉTTIR30.08.2024, 15:40
Real Madrid hefur lánað hinn brasilíska Reinier til Granada út tímabilið.
Hann er 22 ára og var orðaður við Norwich í ensku Championship deildinni fyrr í þessum mánuði. Hann mun hins vegar halda sig innan Spánar og innan La Liga.
FRÉTTIR30.08.2024, 15:12
Vinstri bakvörðurinn Juan Bernat er kominn aftur í spænska boltann en hann er genginn í raðir Villarreal frá Paris St-Germain.
Bernat var búinn að færast aftar í goggunarröðina hjá PSG.
Þessi fyrrum leikmaður Bayern München kom upp úr unglingastarfi Valencia og lék með aðalliði félagsins 2011-2014.
FRÉTTIR30.08.2024, 14:13
Aston Villa hefur lánað Enzo Barrenechea til Valencia út tímabilið. Hann er 23 ára argentínskur varnarsinnaður miðjumaður.
Hann kom ásamt Samuel Iling-Junior til Villa frá Juventus í sumar þegar ítalska félagið keypti Douglas Luiz.
FRÉTTIR30.08.2024, 14:05
Nottingham Forest gekk í dag frá kaupum á George Murray-Jones frá Manchester City.
Murray-Jones er nítján ára og hafði verið hjá City í þrjú ár eftir að hafa alist upp hjá Southend.
Hann hefur spilað með yngri landsliðum Englands. Hann lék með unglingaliði City í Evrópukeppni unglingaliða síðasta vetur og með varaliðinu í neðrideildabikarnum.
FRÉTTIR30.08.2024, 14:00
Amario Cozier-Duberry hefur verið lánaður frá Brighton til Blackburn í ensku Championship deildinni út komandi tímabil.
Cozier-Duberry heillaði stuðningsmenn Brighton á undirbúningstímabilinu en hann hefur ekki komið við sögu með liðinu á tímabilinu.
FRÉTTIR30.08.2024, 13:42
Wolves hefur gengið frá kaupum á tveimur ungum leikmönnum. Ethan Sunderland kemur frá St. Mirren í Skotlandi og Bastien Meupiyou kemur frá Nantes í Frakklandi.
Báðir eru þeir átján ára gamlir. Meupiyou er varnarmaður sem kostar um 5 milljónir punda
Vinstri vængmaðurinn Sutherland er talinn kosta um 300 þúsund pund en St. Mirren getur fengið fína summu í árangurstengdum greiðslum og með framtíðarsölu.
FRÉTTIR30.08.2024, 12:51
Oliver Glasner, stjóri Crystal Palace, greindi frá því á fréttamannafundi í dag að Marc Guehi verði áfram hjá félaginu.
Guehi hefur verið sterklega orðaður við Newcastle í þessum glugga en Palace hefur staðið í lappirnar og alltaf beðið um hærri og svo hærri upphæð frá Newcastle.
Enskir miðlar hafa sagt frá því að Newcastle hafi boðið 65 milljónir punda og fimm milljónir í árangurstengdum gjöldum í Guehi en Palace hafi sagt nei. Sú upphæð hefði gert Guehi að metkaupum hjá Newcastle.
FRÉTTIR30.08.2024, 11:53
Southampton hefur gengið frá kaupum á Aaron Ramsdale frá Arsenal.
Southampton greiðir 18 milljónir punda í staðgreiðslu en kaupverðið getur hækkað um sjö milljónir punda út frá árangurstengdum gjöldum.
Southampton telur að félagið hafi náð að ganga frá öllum pappírum í tæka tíð svo Ramsdale geti spilað gegn Brentford á morgun, en það hefur ekki verið staðfest.