Fotbolti.net
30.08.24 - 14:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Forest kaupir unglingalandsliðsmarkvörð af City (Staðfest)

Forest kaupir unglingalandsliðsmarkvörð af City (Staðfest)
Canon

Mynd: Nottingham Forest

Nottingham Forest gekk í dag frá kaupum á George Murray-Jones frá Manchester City.

Murray-Jones er nítján ára og hafði verið hjá City í þrjú ár eftir að hafa alist upp hjá Southend.

Hann hefur spilað með yngri landsliðum Englands. Hann lék með unglingaliði City í Evrópukeppni unglingaliða síðasta vetur og með varaliðinu í neðrideildabikarnum.
Murray-Jones skrifar undir þriggja ára samning og mun byrja á því að spila með varaliði Forest. Hann er talinn kosta ríflega milljón punda og City fær 25% af næstu sölu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.