Fotbolti.net
30.08.24 - 14:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jói útherji

Villa lánar Barrenechea til Valencia (Staðfest)

Villa lánar Barrenechea til Valencia (Staðfest)
Canon

Mynd: Aston Villa

Aston Villa hefur lánað Enzo Barrenechea til Valencia út tímabilið. Hann er 23 ára argentínskur varnarsinnaður miðjumaður.

Hann kom ásamt Samuel Iling-Junior til Villa frá Juventus í sumar þegar ítalska félagið keypti Douglas Luiz.
Aston Villa fékk þá Barrenechea og Iling-Junior á um 19 milljónir punda samtals. Sú upphæð gæti hækkað eftir ákvæðum.

Barrenechea lék með Sion, Frosinone og Juventus áður en hann kom til Aston Villa. Hann spilaði á undirbúningstímabili en hefur ekki spilað með Villa í byrjun tímabilsins.

Villa lánaði Iling-Junior til Bologna fyrr í þessum glugga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.