Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 30. ágúst 2024 20:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Liverpool lánar Phillips til Derby (Staðfest)
Mynd: Derby County

Nat Phillips er genginn til liðs við Derby, sem leikur í Championship deildinni, á láni frá Liverpool út tímabilið.


Þessi 27 ára gamli miðvörður gekk til liðs við Liverpool frá Bolton árið 2016. Hann lék sinn fyrsta deildarleik fyrir Liverpool tímabilið 2020/21 en leikirnir urðu 17 talsins á tímabilinu.

Hann var á láni hjá Cardiff í Championship deildinni seinni hluta síðasta tímabils en hann hefur einnig verið á láni hjá Stuttgart, Bournemouth og Celtic.

Derby er með þrjú stig eftir þrjá leiki í Championship en næsti leikur liðsins er heimaleikur gegn Bristol City á morgun.


Athugasemdir
banner
banner
banner