Liverpool lánar Phillips til Derby (Staðfest)

Nat Phillips er genginn til liðs við Derby, sem leikur í Championship deildinni, á láni frá Liverpool út tímabilið.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25134 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Nat Phillips er genginn til liðs við Derby, sem leikur í Championship deildinni, á láni frá Liverpool út tímabilið.

Valgeir Lunddal Friðriksson er genginn til liðs við þýska félagið Fortuna Dusseldorf frá Hacken í Svíþjóð.

Scott McTominay er genginn til liðs við Napoli frá Manchester United.

Crystal Palace hefur gengið frá kaupum á Maxence Lacroix frá Wolfsburg. Lacroix er miðvörður en hann skrifar undir fimm ára samning við félagið.

Manchester United hefur staðfest komu Sekou Kone frá Guidars FC frá Malí. Hann er miðjumaður.

Orel Mangala er genginn til liðs við Everton á láni frá Lyon út tímabilið. Aðeins um lánssamning er að ræða svo hann mun snúa aftur til Frakklands næsta sumar.

Austurríska félagið Red Bull Salzburg hefur fengið miðjumanninn Stefan Bajcetic á láni frá Liverpool. Pep Lijnders, fyrrum aðstoðarþjálfari Jürgen Klopp hjá Liverpool, er aðalþjálfari Salzburg í dag og hefur miklar mætur á Bajcetic. Lijnders vill ólmur fá hann til Salzburg.
Inter hefur tilkynnt um kaup á argentínska varnarmanninum Tomas Palacios frá Talleres. Palacios er 21 árs en ítalskir fjölmiðlar segja kaupverðið í kringum 6,5 milljónir evra.
Brasilíski markvörðurinn Neto er genginn í raðir Arsenal frá Bournemouth. Hann kemur til Lundúnafélagsins á láni út tímabilið. Arsenal reyndi að fá Joan García frá Espanyol en það gekk ekki eftir. Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var spurður út í markvarðarmálin á fréttamannafundi í dag og grínaðist þá með það að hann vildi fá Gary Cotterill, fréttamann Sky Sports, í markið hjá sér.
Real Madrid hefur lánað hinn brasilíska Reinier til Granada út tímabilið. Hann er 22 ára og var orðaður við Norwich í ensku Championship deildinni fyrr í þessum mánuði. Hann mun hins vegar halda sig innan Spánar og innan La Liga.
Vinstri bakvörðurinn Juan Bernat er kominn aftur í spænska boltann en hann er genginn í raðir Villarreal frá Paris St-Germain. Bernat var búinn að færast aftar í goggunarröðina hjá PSG. Þessi fyrrum leikmaður Bayern München kom upp úr unglingastarfi Valencia og lék með aðalliði félagsins 2011-2014.
Aston Villa hefur lánað Enzo Barrenechea til Valencia út tímabilið. Hann er 23 ára argentínskur varnarsinnaður miðjumaður. Hann kom ásamt Samuel Iling-Junior til Villa frá Juventus í sumar þegar ítalska félagið keypti Douglas Luiz.
Nottingham Forest gekk í dag frá kaupum á George Murray-Jones frá Manchester City. Murray-Jones er nítján ára og hafði verið hjá City í þrjú ár eftir að hafa alist upp hjá Southend. Hann hefur spilað með yngri landsliðum Englands. Hann lék með unglingaliði City í Evrópukeppni unglingaliða síðasta vetur og með varaliðinu í neðrideildabikarnum.
Amario Cozier-Duberry hefur verið lánaður frá Brighton til Blackburn í ensku Championship deildinni út komandi tímabil. Cozier-Duberry heillaði stuðningsmenn Brighton á undirbúningstímabilinu en hann hefur ekki komið við sögu með liðinu á tímabilinu.
Wolves hefur gengið frá kaupum á tveimur ungum leikmönnum. Ethan Sunderland kemur frá St. Mirren í Skotlandi og Bastien Meupiyou kemur frá Nantes í Frakklandi. Báðir eru þeir átján ára gamlir. Meupiyou er varnarmaður sem kostar um 5 milljónir punda Vinstri vængmaðurinn Sutherland er talinn kosta um 300 þúsund pund en St. Mirren getur fengið fína summu í árangurstengdum greiðslum og með framtíðarsölu.
Oliver Glasner, stjóri Crystal Palace, greindi frá því á fréttamannafundi í dag að Marc Guehi verði áfram hjá félaginu. Guehi hefur verið sterklega orðaður við Newcastle í þessum glugga en Palace hefur staðið í lappirnar og alltaf beðið um hærri og svo hærri upphæð frá Newcastle. Enskir miðlar hafa sagt frá því að Newcastle hafi boðið 65 milljónir punda og fimm milljónir í árangurstengdum gjöldum í Guehi en Palace hafi sagt nei. Sú upphæð hefði gert Guehi að metkaupum hjá Newcastle.
Southampton hefur gengið frá kaupum á Aaron Ramsdale frá Arsenal. Southampton greiðir 18 milljónir punda í staðgreiðslu en kaupverðið getur hækkað um sjö milljónir punda út frá árangurstengdum gjöldum. Southampton telur að félagið hafi náð að ganga frá öllum pappírum í tæka tíð svo Ramsdale geti spilað gegn Brentford á morgun, en það hefur ekki verið staðfest.
Leeds tilkynnti í dag um kaup á Ao Tanaka frá þýska félaginu Fortuna Düsseldorf. Tanaka er japanskur landsliðsmaður sem Leeds greiðir ríflega 4 milljónir evra fyrir. Miðjumaðurinn skrifar unfir fjögurra ára samning við Leeds sem er í ensku Championship deildinni.
Aston Villa tilkynnti í dag um kaup á Yeimar Mosquera sem kemur frá kólumbíska félaginu Orsomarso. Aston Villa kaupir kappann og lánar hann til Real Union sem spilar í spænsku C-deildinni. Aston Villa og Real Union eru í samstarfi.
Hólmbert Aron Friðjónsson er genginn í raðir þýska félagsins Preussen Münster. Hólmbert er stór og stæðilegur framherji sem kemur til Münster eftir að samningur hans við Holstein Kiel rann út í sumar. Hann var fyrst orðaður við félagið í lok júlí.