Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25139 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR13.08.2024, 19:42

Man Utd fær Mazraoui frá Bayern (Staðfest)

Það hefur verið nóg að gera hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United í kvöld en það var rétt í þessu að kynna kaupin á Noussair Mazraoui frá Bayern München.

FRÉTTIR13.08.2024, 19:18

Matthijs de Ligt til Man Utd (Staðfest)

Manchester United hefur tilkynnt kaupin á hollenska varnarmanninum Matthijs De Ligt en hann kemur frá Bayern München fyrir 43 milljónir punda.

FRÉTTIR13.08.2024, 15:58

Julian Araujo frá Barcelona til Bournemouth (Staðfest)

Bournemouth hefur keypt mexíkóska bakvörðinn Julian Araujo frá Barcelona en kaupverð er ekki gefið upp. Þessi 23 ára leikmaður fór til Barcelona síðasta sumar en var strax lánaður til Las Palmas þar sem hann lék 25 leiki í La Liga.

FRÉTTIR13.08.2024, 15:38

Dusan Brkovic í Leikni (Staðfest)

Leiknir staðfesti rétt í þessu að félagið væri búið að semja við Dusan Brkovic um að leika með liðinu. Dusan er gífurlega reynslumikill serbneskur miðvörður sem hefur leikið á Íslandi undanfarin ár, fyrst með KA í þrjú tímabil og svo með FH á þessu tímabili.

FRÉTTIR13.08.2024, 14:20

Njarðvík fær brasilískan varnarmann (Staðfest)

Marcelo Deverlan, 24 ára Brasilíumaður, er genginn í raðir Njarðvíkur og skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2025. Hann er varnarmaður, hafsent, sem hefur spilað í Brasilíu nánast allan sinn feril. Hann var í Red Bull Bragantino en hefur einnig verið á mála hjá Corinthians og Livorno á Ítalíu. Hann lék í vetur með Trofense í portúgölsku C-deildinni.

FRÉTTIR13.08.2024, 13:43

ÍA lánar Ármann Inga í Grindavík (Staðfest)

Grindavík hefur fengið liðsstyrk fyrir lokasprettinn á tímabilinu því Ármann Ingi Finnbogason er kominn á láni frá ÍA. Ármann er tvítugur miðjumaður sem er samningsbundinn ÍA út næsta tímabil. Hann hefur komið við sögu í átta leikjum í Bestu deildinni og einum leik í bikarnum.

FRÉTTIR13.08.2024, 13:00

ÍA fær unglingalandsliðsmann frá KFA (Staðfest)

Miðjumaðurinn Jón Breki Guðmundsson er genginn í raðir ÍA frá KFA. Hann er kominn með leikheimild með ÍA fyrir komandi leik gegn Víkingi næsta mánudag. Jón Breki er fæddur árið 2008 og kom við sögu í tólf leikjum í 2. deild karla í sumar, einum leik í Mjólkurbikarnum og tveimur í Fótbolti.net bikarnum. Fyrsti deildarleikur hans kom á síðasta tímabili. Hann var skráður í Þrótt Neskaupstað.

FRÉTTIR13.08.2024, 11:05

Wan-Bissaka í West Ham (Staðfest)

Hægri bakvörðurinn Aaron Wan-Bissaka er genginn í raðir West Ham frá Manchester United. Verið var að staðfesta þessi félagaskipti. West Ham borgar um 15 milljónir punda fyrir Wan-Bissaka. Hann skrifar undir sjö ára samning við Lundúnafélagið.

FRÉTTIR12.08.2024, 22:46

Valur kaupir Skoglund (Staðfest)

Valur hefur keypt hinn 27 ára gamla Albin Skoglund frá sænska B-deildarfélaginu Utsiktens BK og er hann þegar kominn með leikheimild með félaginu.

FRÉTTIR12.08.2024, 16:18

Stjarnan kallar Breka Baxter til baka úr láni (Staðfest)

Stjarnan hefur kallað Þorlák Breka Baxter úr láni en hann hefur verið á láni hjá Selfossi frá því á lokadegi fyrri félagaskiptaglugga ársins. Selfoss hefur átt gott tímabil í 2. deild og er liðið á toppi deildarinnar með sex stiga forskot þegar sex umferðir eru eftir.

FRÉTTIR12.08.2024, 15:04

Julian Alvarez til Atletico (Staðfest) - Metsala hjá City

Atletico Madrid hefur tilkynnt um komu Julian Alvarez til félagsins frá Manchester City. Hann er keyptur á 75 milljónir evra og kaupverðið getur hækkað um 20 milljónir evra til viðbótar með árangurstengdum greiðslum. Alvarez er 24 ára og keypti City hann á um 20 milljónir evra frá River Plate í janúar 2022. Salan til Atletico er sú hæsta í sögu Manchester City. Raheem Sterling var fyrir þessa sölu sá dýrasti sem hafði farið frá City. Hann skrifar undir sex ára samning við Atletico. Hann er næstdýrastur í sögu spænska félagsins, fer fyrir ofan Thomas Lemar sem var sá næstdýrasti. Joao Felix er langdýrastur en hann kostaði 127 milljónir evra þegar hann kom frá Benfica.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.