FRÉTTIR01.02.2024, 14:49
Thomas Frank, stjóri Brentford, sat í dag fyrir svörum á fréttamannafundi en framundan er leikur gegn Manchester City á mánudag.
Ivan Toney hefur verið orðaður í burtu í glugganum en líkurnar á því að hann færi hafa farið minnkandi síðustu daga. Þær eru nú orðnar að engu.
FRÉTTIR01.02.2024, 14:39
Rúnar Alex Rúnarsson hefur náð samkomulagi við Arsenal um riftun á samningi sínum við félagið. Þetta kemur fram í tilkynningu Arsenal. Rúnar Alex átti hálft ár eftir af samningi sínum.
Hann var á láni hjá Cardiff en velska félagið er að fá inn annan markvörð og lánssamningnum við Arsenal var svo rift.
Rúnar Alex kom frá Dijon í september 2020 og kom við sögu í sex leikjum á fyrsta tímabilinu hjá Arsenal. Í þeim hélt hann þrisvar sinnum hreinu.
FRÉTTIR01.02.2024, 12:52
Liverpool tilkynnti rétt í þessu að búið væri að kalla Rhys Williams til baka úr láni frá Port Vale.
Varnarmaðurinn var lánaður þann 16. janúar en er mættur til baka vegna meiðsla og verður hjá Liverpool í endurhæfingu.
FRÉTTIR01.02.2024, 12:36
Bolton hefur fest kaup á framherjanum Aaron Collins sem kemur frá Bristol Rovers. Kaupverðið er óuppgefið.
Collins var á síðasta tímabili besti leikmaður ensku C-deildarinnar þegar hann skoraði sextán mörk fyrir Rovers. Collins er 26 ára Walesverji. Á þessu tímabili hefur hann skorað þrjú mörk í 27 deildarleikjum.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem Bolton kaupir í glugganum og skrifar hann undir samning fram á sumarið 2027. Fyrir hafði Bolton fengið Calvin Ramsay frá Liverpool á láni og Nathan Ogbeta frá Swansea.
FRÉTTIR01.02.2024, 12:00
Sunderland hefur fest kaup á Romaine Mundle og er hann genginn í raðir enska félagsins. Sunderland kaupir hann frá Standard Liege og greiðir Sunderland 2 milljónir punda fyrir vængmanninn.
Mundle er tvítugur Englendingur sem uppalinn er hjá Tottenham en hélt til Belgíu í fyrra. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Standard síðasta sumar. Hann skrifar undir fjögurra og hálfs árs samning við Sunderland.
Sunderland var ekki lengi að tilkynna þennan nýjasta leikmann félagsins eftir að Alex Pritchard var seldur til Birmingham.
FRÉTTIR01.02.2024, 11:17
Aston Villa hefur gengið frá kaupum á Morgan Rogers frá Middlesbrough. Villa greiðir samtals um 15 milljónir punda fyrir leikmanninn ef öll ákvæði virkjast. Rogers fær treyju númer 27 hjá Villa.
Rogers er 21 árs og skoraði hann sjö mörk og lagði upp átta hjá Boro á þessu tímabili.
Rogers kannast vel við sig í Miðlöndum en hann hóf feril sinn hjá WBA áður en hann fór til Manchester City.
FRÉTTIR01.02.2024, 10:55
Axel Óskar Andrésson hefur rift samningi sínum við sænska félagið Örebro. Félagið tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í dag. Axel var leikmaður félagsins í tvö tímabil, kom frá Riga í Lettlandi árið 2022 og var samningsbundinn út komandi tímabil.
Axel sagði frá því í vetur að hugur hans stefndi á stærri deild, stað þar sem hann gæti verið nær því að vera valinn í landsliðið ef hann spilaði vel.
FRÉTTIR01.02.2024, 10:40
Þýska stórveldið Bayern München er búið að ganga frá kaupum á Jonah Kusi-Asare.
Kusi-Asare er 16 ára gamall sóknarmaður en hann hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað fjóra leiki í sænsku úrvalsdeildinni.
FRÉTTIR01.02.2024, 10:22
Arsenal hefur selt miðjumanninn Bradley Ibrahim til þýska félagsins Hertha Berlin. Kaupverðið er óuppgefið.
Ibrahim hefur ekki leikið aðalliðsleik fyrir Arsenal til þessa. Hann er nítján ára Englendingur sem fæddur er í London og lék á sínum tíma tvo leiki fyrir U18 landsliðið.
FRÉTTIR01.02.2024, 09:32
Mahmoud Dahoud miðjumaður Brighton hefur gengið í raðir þýska félagsins Stuttgart á láni þar til í lok tímabilsins.
Þessi 28 ára leikmaður kom til Brighton frá Borussia Dortmund síðasa sumar og hefur spilað fjórtán leiki í öllum keppnum fyrir félagið.
Hjá Stuttgart hittir hann Deniz Undav sem er einnig á láni frá Brighton og hefur skorað tólf mörk í þýsku Bundesligunni á tímabilinu.
David Weir hjá Brighton segir á heimasíðu félagsins að þetta gefi Dahoud tækifæri til að spila reglulega fyrir lið sem sé að gera góða hluti í þýsku deildinni. Stuttgart situr í þriðja sæti.
FRÉTTIR01.02.2024, 09:20
Nottingham Forest hefur fengið til sín Rodrigo Ribeiro, yngri landsliðsmann Portúgals, á láni frá Sporting Lissabon.
Þessi átján ára leikmaður kemur til félagsins á láni út tímabilið með möguleika á því að Forest kaupi hann alfarið.
Ribeiro kemur í gegnum unglingastarf Sporting og lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið félagsins í Meistaradeildaradeildarleik gegn Manchester City í mars 2022. Hann skoraði sex mörk í níu leikjum þegar Sporting komst í undanúrslit í Evrópukeppni unglingaliða á síðasta tímabili.
FRÉTTIR01.02.2024, 06:00
Manchester United hefur lánað úrúgvæska vængmanninn Facundo Pellistri til spænska félagsins Granada út tímabilið.
FRÉTTIR01.02.2024, 06:00
Króatíski miðjumaðurinn Ivan Rakitic er kominn til sádi-arabíska félagsins Al-Shabab frá Sevilla.
FRÉTTIR01.02.2024, 00:30
Bandaríski landsliðsmaðurinn Giovanni Reyna skrifaði í kvöld undir lánssamning hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Nottingham Forest, en hann kemur frá Borussia Dortmund.
FRÉTTIR31.01.2024, 20:55
Enska úrvalsdeildarfélagið Wolves staðfesti í kvöld félagaskipti Noah Lemina frá Paris Saint-Germain, en hann kemur á láni út leiktíðina.
FRÉTTIR31.01.2024, 20:26
Argentínski miðjumaðurinn Carlos Alcaraz er kominn til ítalska stórliðsins Juventus á láni frá Southampton.
FRÉTTIR31.01.2024, 17:30
Rúnar Gissurarson er mættur aftur til Keflavíkur eftir að hafa leikið með Þrótti Vogum seinni hluta síðasta tímabils. Rúnar skrifar undir samning sem gildir út komandi tímabil.
Hann er 37 ára gamall og á að styðja við hinn efnilega Ásgeir Orra Magnússon sem lék sína fyrstu keppnisleiki á síðasta tímabili.
FRÉTTIR31.01.2024, 16:30
Sigurður Hrannar Þorsteinsson er mættur til Ægis á láni frá ÍA. Hann mun spila með Ægi í 2. deildinni í sumar.
Sigurður Hrannar lék í 2. deild í fyrra og skoraði þar tólf mörk í 21 leik með Vöslungi. Einungis þrír leikmenn skoruðu meira en hann í deildinni á síðasta tímabili.
Hann er 23 ára sóknarmaður sem uppalinn er á Skaganum en hefur á ferli sínum einnig leikið með Kára og Gróttu, ásamt svo Völsungi í fyrra. Hann er samningsbundinn ÍA út komandi tímabil.
FRÉTTIR31.01.2024, 16:09
Tveir leikmenn úr Bestu deild kvenna hafa fengið félagaskipti til Danmerkur á síðustu dögum. Það eru þær Málfríður Anna Eiríksdóttir og Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir.
Málfríður hefur leikið allan sinn feril með Val. Hún er í námi í Danmörku og mun spila með B93 út tímabilið í Danmörku. Það kom fyrst fram á <a href="https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2024/01/30/islandsmeistarinn_til_danmerkur/" target="_blank"><b><i>mbl.is</I></b>.</a>
FRÉTTIR31.01.2024, 14:00
Aron Bjarki Jósepsson verður með Gróttu í sumar en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag. Aron, sem er 34 ára, var óvenjulega iðinn við kolann í markaskorun á síðasta tímabili en varnarmaðurinn skoraði fjögur mörk í 21 leik með Gróttu í Lengjudeildinni. Það gerði hann að þriðja markahæsta leikmanni liðsins.
<i>„Það var smá spurning á tímabili, spáði í þessu eftir síðasta tímabil, maður veit aldrei hvað maður endist í þessu. En það er allt klárt, ég hef verið að æfa síðan í desember,"</I> segir Aron Bjarki.